The Youth Council put forward proposals to the town council.
Fulltrúar í ungmennaráði Hafnarfjarðar lögðu 12 tillögur fyrir bæjarstjórn á fundi þeirra í dag þann 26. mars. Allar fara tillögurnar áfram til umræðu innan viðeigandi ráða.
All proposals referred for discussion
Fulltrúar í ungmennaráði Hafnarfjarðar lögðu 12 tillögur fyrir bæjarstjórn á fundi þeirra í dag þann 26. mars. Unga fólkið ræddi mikilvægi hjúkrunarfræðinga í grunnskólum, hinsegin málefni, meira samráð við ungmenni, lengri opnunartíma sundlauga og ýmis önnur málefni sem brenna á þeim.
Þau stigu í pontu eitt af öðru. Bæjarfulltrúarnir hlustuðu af athygli. Valdimar Víðisson bæjarstjóri sagði ljóst að unga fólkið legði áherslu á að talað væri við þau en ekki um þau.
„Það er mikilvægt að þið fáið líka niðurstöðu og að vita hvað verður um tillögurnar,“ sagði bæjarstjóri og þakkaði fyrir greinargóðar tillögur og að unga fólkið léti sig samfélagið varða. Unnið væri úr þeim á næstu vikum og mánuðum.
Unnið með Ungmennaráðinu
Kristín Thoroddsen sagði að strax í næstu viku yrði ungmennaráðið boðað á fund Fræðsluráð. Tillögur þeirra væru bæði rökstundar og útfærðar. Hún sæi leiðir til að vinna með þær flestar. Hún hlakkaði til að vinna enn frekar með unga fólkinu.
Guðmundur Árni Stefánsson hvatti unga fólkið til að taka þátt í ungliðastarfi stjórnmálaflokkanna. Jón Ingi Hákonarson sagði ungliðaheimsóknina í bæjarstjórn einn skemmtilegasta bæjarstjórnarfundinn ár hvert. Nú væri lag fyrir unga fólkið að koma málunum sínum fram enda aðeins ár til kosninga.
Stefán Már Gunnlaugsson hvatti unga fólkið til að halda málunum sem hefðu ekki fengið framgang á lofti. „Því dropinn holar steininn.“
This is what the proposals sounded like. The Hafnarfjörður Youth Council proposes:
- Að Hafnarfjarðarbær ráðist í aðgerðir í þágu ungmenna með fatlanir.
- Að hjúkrunarfræðingar séu til staðar alla daga í grunnskólum Hafnarfjarðar.
- Að haft verði meira samráð við ungmenni þegar teknar eru ákvarðanir sem hafa áhrif á börn.
- Að opnunartími sundlauga bæjarins verði lengdur um helgar.
- Að fulltrúar Ungmennaráðs fái greitt fyrir fundarsetu í ráðum og nefndum.
- Að Ungmennaráð fái fulltrúa í fræðsluráði.
- Að opnunartímar í bókasöfnum grunnskólanna verði lengdir og söfnin verði gerð aðgengilegri nemendum.
- Að Hafnarfjarðarbær ráðist í aðgerðir í þágu hinsegin ungmenna.
- Að aðgengi að leiklista- og sönglistavali sé aukið í öllum grunnskólum bæjarins.
- Að ruslatunnum í bæjarlandinu verði fjölgað og aðgengi að þeim bætt.
- Að frítt verði í Strætó fyrir börn undir 18 ára aldri, tíðni á leið 19 verði aukin og þjónusta Strætó aukin í Setbergi.
13-18 ára í Ungmennaráðinu
The Youth Council of Hafnarfjörður is a platform for young people aged 13-18. The emphasis is on training in democratic working methods, as well as communicating the views of young people to the relevant authorities within the system.
The Youth Council consists of two representatives from each primary school in Hafnarfjörður, three from each secondary school in Hafnarfjörður, and three representatives who are selected through the youth work.
Starfsmenn ráðsins eru tveir og starfa þeir fyrst og fremst sem ráðgjafar og hafa því ekki áhrif á starfsemi þess. Markmið ráðsins að skapa vettvang og leiðir fyrir þá sem eru yngri en 18 ára til að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila. Þátttaka ungs fólks er mikilvæg til þess að bæta þjónustu og aðstæður þeirra. Á það fyrst og fremst við um málefni sem viðkemur ungu fólki á einn eða annan hátt og þau þekkja af eigin raun. Þar má nefna skólastarf, tómstundastarf og skipulag nánasta umhverfis.
More about the Hafnarfjörður Youth Council