Winter holiday in Hafnarfjörður
Swimming is free during the primary school winter holidays, and the museums are offering an exciting programme for primary school children and their families.
Vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar mánudaginn og þriðjudaginn 21.-22. febrúar og víðar um land. Af því tilefni er m.a. Free swimming fyrir börn og fullorðna þessa daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar.
The health town of Hafnarfjörður í samvinnu við Hugmyndabankann býður börnum og fjölskyldum þeirra að spreyta sig á skemmtilegum ratleik í nærumhverfinu í vetrarfríinu sem Margrét Ýr Ingimarsdóttir tveggja barna móðir og kennari í Hvaleyrarskóla hefur tekið saman. Þá viðrar vel til ýmissa vetraríþrótta og tilvalið að draga fram snjóþotur, bretti og skíði og spreyta sig í næstu brekku eða gönguskíðabrautunum sem lagðar hafa verið á Óla Run túni og Hvaleyrarvelli .
Hafnarfjörður Library verður með dulmálssmiðju og allskonar bækur fyrir unga og upprennandi spæjara uppivið í vetrarfríinu. Barna- og ungmennadeildin tekur vel á móti grunnskólabörnum, spil verða í boði um allt bókasafnið, og svo verður Intrix á svæðinu frá kl. 17:00 á þriðjudaginn með sýndarveruleikabúnaðinn sinn, og um að gera að mæta og prófa – en búnaðurinn hentar krökkum 6 ára og eldri og er líka ótrúlega skemmtilegur fyrir mömmur og pabba.
Warehouse of the Hafnarfjörður Folk Museum verður opið í vetrarfríinu og hægt að taka þátt í skemmtilegum og fróðlegum ratleik sem leiðir alla fjölskylduna um safnið, prufa að vera fornleifafræðingur á uppgraftrarsvæðinu eða spila gamla tölvuleiki á borð við Space invaders og Super Mario bros. Þá býður Port city grunnskólabörnum að koma og taka þátt í skemmtilegri og skapandi listasmiðjum á vegum safnsins.
Laugardagur 19. febrúar
- Byggðasafn Hafnarfjarðar opið kl. 11-17. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.
- Músíkmóment á Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 13. Silja Rós flytur eigin tónlist.
- Sýningarnar Lengi skal manninn reyna and Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun – III. hluti í Hafnarborg. Opið kl. 12-17.
Sunnudagur 20. febrúar
- Byggðasafn Hafnarfjarðar opið 11-17. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.
- Sýningarnar Lengi skal manninn reyna and Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun – III. hluti í Hafnarborg. Opið kl. 12-17. Sýningarstjóraspjall um Lengi skal manninn reyna, yfirlitssýningu á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar, kl. 14. Nánar á hafnarborg.is
Mánudagur 21. febrúar
- Kl. 6:30-22 FRÍTT Í SUND í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll (til kl. 21)
- Byggðasafn Hafnarfjarðar opið kl. 11-16. Barnaleiðsögn um safnið kl. 13.
- Litróf tilfinningannna-listasmiðja í Hafnarborg kl. 13-15. Boðið verður upp á mismunandi aðferðir við gerð myndverka með áherslu á litanotkun og tengingu lita við tilfinningar. Smiðjan hentar börnum á grunnskólaaldri en öll eru velkomin sem vilja og hafa áhuga. Nánar á hafnarborg.is
- Höfundur í heimsókn á Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 17. Þórunn Jarla Valdimarsdóttir les úr bók sinni, Bærinn brennur.
Þriðjudagur 22. febrúar
- Kl. 6:30-22 FRÍTT Í SUND í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll (til kl. 21)
- Klippa, líma, lita í Hafnarborg kl. 13-15. Unnið verður með aðferðir klippimynda (e. collage) og listaverkin unnin áfram með teikningu/málun. Nánar á hafnarborg.is
- Byggðasafn Hafnarfjarðar opið kl. 11-16. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.
- Dulmálssmiðja og sýndarveruleikir á Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 13 . Létt og skemmtileg smiðja fyrir forvitna krakka í vetrarfríi. Sýndarveruleikaspilun frá kl. 17.
Þá hefur heilsubærinn Hafnarfjörður tekið saman A whole alphabet of ideas for lots of exciting and fun things. that people can take up at home or in their local area. There you can find plenty of ideas for something new and different to do on your own or with the family. Here on the website, you can also find a list of unique Natural phenomena and interesting places and a number of Walking and cycling route which run through Hafnarfjörður.
The health town of Hafnarfjörður wishes its residents and friends a happy winter holiday!