We, the people of Hafnarfjörður, bid farewell to Halldór Árni.

News

Halldór Árni Sveinsson, myndlistar- og fjölmiðlamaður og kennari, verður jarðsunginn í dag. Halldór var í lykilhlutverki í að varðveita menningararf okkar Hafnfirðinga.

Halldór Árni jarðsunginn í dag

Halldór Árni Sveinsson, myndlistar- og fjölmiðlamaður og kennari, verður jarðsunginn í dag. Halldór var í lykilhlutverki í að varðveita menningararf okkar Hafnfirðinga. Hann tók meðal annars upp fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í fjóra áratugi, allt til ársins 2023 en hann streymdi sínum síðasta bæjarstjórnarfundi 20. desember það ár.

Halldór fæddist 22. febrúar 1955. Hann lést 15. júlí 2026. Foreldrar Halldórs voru Sveinn Halldórsson, f. 16.12. 1926, d. 18.7. 2006, og Lilja Árna Sigurðardóttir, f. 15.8. 1928, d. 28.1. 2015.

Halldór Árni Sveinsson, myndlistar- og fjölmiðlamaður og kennari, verður jarðsunginn í dag. Mynd/Guðni Gíslason

Halldór vann mörg og fjölbreytt störf yfir ævina. Snemma á fullorðinsárum starfaði hann sem plötusnúður, skemmtanastjóri og við önnur tæknistörf. Hann lærði auglýsingateiknun í Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1982-1986. Þá vann hann við fjölmiðlun og kvikmyndagerð, og kenndi lengi fjölmiðlatækni við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í minningu um hann í Morgunblaðinu í dag.

Síðustu ár starfsævinnar starfaði hann sjálfstætt og sá um netstreymi fyrir fjölmargar stofnanir, félög og einkaaðila. Eftir hann liggur stórt safn hljóð- og myndefnis, aðallega af menningarviðburðum, sem spannar meira en fjóra ártugi. Halldór var þar að auki myndlistarmaður og stóð að mörgum myndlistarsýningum. Útför Halldórs fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 11. ágúst 2026, klukkan 15.

Hafnarfjarðarbær minnist góðs manns. Vegferð Halldórs Árna fyrir Hafnarfjarðarbæ hófst fyrir rétt um 40 árum síðan á 75 ára afmæli bæjarins árið þar sem hann sá um fyrstu hafnfirsku útvarpsútsendinguna og fékk Halldór Árni fjórða leyfið sem veitt var á Íslandi til útvarpsútsendinga eftir að einkaleyfi Ríkisútvarpsins var afnumið. Útsendingin varð kveikjan að því sem síðar varð Útvarp Hafnarfjarðar. Fyrsta útsending bæjarstjórnarfundar var í upphafi árs 1988 þar sem fjárhagsáætlun fyrir starfsárið var samþykkt.

Halldóri Árna var margt til lista lagt. Hann hefur með margvíslegum hætti bæði sett sitt mark á bæjarlífið í Hafnarfirði og skjalfestingu þess. Halldór Árni var yfirleitt fyrsti maður á staðinn við hina ýmsu fagnaði og hátíðarhöld. Eftir hann liggur stórt og mikið safn um sögulega atburði Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbæjar í máli og myndum.

Þórður Þórarinsson bæjarstjóri ritar í minningargrein sinni um Halldór Árna að hann státi vafalaust af því að hafa setið flesta bæjarstjórnarfundi Hafnarfjarðarbæjar.

„Hafnarfjörður stendur í mikilli þakkarskuld við Halldór fyrir að skjalfesta sögu bæjarins og miðla henni til bæjarbúa. Blessuð sé minning hans. Afkomendum hans, ættingjum og vinum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Þórður Þórarinsson“

Orri Björnsson, formaður bæjarráðs, skrifar um Halldór Árna:

„Upptökur hans af viðburðum, stórum og smáum, eru orðnar að miklum fjársjóði fyrir okkur Hafnfirðinga en hann var líka listamaður og prýðilegur penni. Þúsundir klukkutíma og þúsundir andlita eru til á mynd vegna þess að Dóri mætti með vélina á ótrúlegustu viðburði, stóra og smáa, og tók þá upp. Fyrir þetta á hann skilið ævarandi þökk og heiður, og við Hafnfirðingar erum svo sannarlega þakklátir.“

Orri segir jafnframt:

„Söknuðurinn er auðvitað mikill, hjá ættingjum og vinum, en minningin um góðan dreng lifir og vissan um það að líf Halldórs Árna Sveinssonar var innihaldsríkt og gott er það sem að lokum skiptir mestu máli. Takk fyrir samfylgdina Dóri minn.“

 

Við hjá Hafnarfjarðarbæ tökum undir þessi orð, þökkum Dóra samfylgdina, fyrir öll störf sem hann vann í þágu bæjarins og góða nærveru alla tíð. Samúðarkveðjur til ykkar sem stóðuð honum næst.

 

 

 

 

 

Suggestion portal