Would you like to take part in this summer's events? Let us know.
Við fögnum menningu og samveru í Hafnarfirði með fjölbreyttri dagskrá í allt sumarið! Göngur, Listir, tónlist, fjölskyldustemning og skemmtilegir viðburðir munu fylla bæinn frá júní til ágúst. Viltu vera með viðburð? Sendu okkur línu.
Sumarið er skemmtilegt í Hafnarfirði
Við fögnum menningu og samveru í Hafnarfirði með fjölbreyttri dagskrá í allt sumarið! Göngur, Listir, tónlist, fjölskyldustemning og skemmtilegir viðburðir munu fylla bæinn frá júní til ágúst – viðburðir fyrir alla aldurshópa, víða um bæinn og undir berum himni. Hvort sem þú ert að skipuleggja viðburð eða vilt fylgjast með því sem er í gangi – þá er sumarið 2025 tíminn til að njóta Hafnarfjarðar í allri sinni dýrð. Dagskráin verður birt í sumarbæklingi sem borinn verður í hús í Hafnarfirði í lok maí en einnig verða viðburðir uppfærðir reglulega hér á vefnum.
Langar þig að taka þátt?
Þeir sem hyggjast standa fyrir viðburði eru hvattir til að hafa samband og senda inn upplýsingar á netfangið menning@hafnarfjordur.is sem fyrst.
Nýttu Upplifunarhúsin á Thorsplani!
Við bjóðum einnig upp á tækifæri til að nýta glerhúsin við jaðar Thorsplans fyrir gleðilega viðburði, vörukynningar og þjónustu. Húsin má panta í gegnum hafnarfjordur@hafnarfjordur.is. They need to be returned in top condition, just as the houses were when they were received.
Have a great time in the heart of Hafnarfjörður!