260 flats are being built at Vellina in Hafnarfjörður.
Reisa á 130 húseiningar með 260 íbúðum á um 10 hektara svæði við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði. Íbúðirnar eru ætlaðar til tímabundinnar búsetu fyrir starfsfólk í verkefnatengdri vinnu. Fyrirvari er um samþykki bæjarstjórnar.
Íbúðir fyrir tímabundna vinnu
Reisa á 130 húseiningar með 260 íbúðum á um 10 hektara svæði við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði. Íbúðirnar eru ætlaðar til tímabundinnar búsetu fyrir starfsfólk í verkefnatengdri vinnu.
Stólpi reisir íbúðirnar fyrir systurfélag sitt Styrkás Fasteignir ehf. Stefnt er að því að uppbyggingin fari fram í tveimur áföngum. Í fyrsta áfanga verða byggð 50 hús með 100 íbúðum og í öðrum áfanga 80 hús með 160 íbúðum, samtals 130 hús og 260 íbúðir. Gengið hefur verið frá samkomulagi um verkefnið, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
„Það skiptir miklu að fólk sem sinnir tímabundnum störfum hér á landi eigi kost á öruggu og góðu húsnæði. Dæmi eru um að fólkið hafi búið við óviðunandi aðstæður í húsnæði sem ekki hefur verið byggt til búsetu og sem jafnvel getur stafað hætta af. Með uppbyggingu Stólpa eykst framboð af öruggu og hagkvæmu húsnæði hratt. Það er mikilvægt að fólk geti búið sér gott heimili meðan það starfar á landinu og skráð lögheimili sitt í Hafnarfirði,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar.
Stólpi hefur um árabil unnið að þróun og framleiðslu hagkvæmra og vandaðra húseininga og meðal annars byggt leikskóla og lögreglustöð úr slíkum einingum. Húsin sem rísa við Krýsuvíkurveg eru hönnuð af Batteríinu Arkitektum og byggð með einingalausnum frá tékkneska fyrirtækinu KOMA MODULAR, sem sérhæfir sig í einingabyggingum.
Börkur Grímsson, forstjóri Stólpa, segir félagið um árabil hafa unnið að þróun húseininga fyrir fjölbreytt verkefni.
„Við þekkjum vel þarfir atvinnulífsins fyrir gott húsnæði til skemmri tíma. Samstarfið við KOMA MODULAR og Batteríið Arkitekta tryggir vandaða hönnun og útfærslu, og að Hafnarfjörður fái búsetuúrræði sem endurspeglar þá samfélagslegu ábyrgð sem við viljum sýna í verki,“ segir hann.
Stólpi mun hafa umsjón með áframhaldandi vinnu að verkefninu, þar á meðal framkvæmdum og útleigu, og hefur Hafnarfjarðarbær heimilað Styrkás Fasteignum að vinna að skipulagi svæðisins.

Dæmi um útlit einingahúsanna. Mynd: Batteríið Arkitektar.
Um er að ræða 35 fermetra einingar sem raðast tvær og tvær saman í parhús, klæddar stálklæðningu í jarðtónum. Stólpi hefur umsjón með framkvæmdum og leigir húsnæðið út til fyrirtækja til afnota fyrir starfsfólk þeirra. Stefnt er að því að fyrstu íbúðirnar rísi á síðari hluta árs 2027, fullbúnar og í samræmi við alla gildandi byggingarstaðla.
Um verkefnið
Samkvæmt samkomulaginu veitir Hafnarfjarðarbær Styrkás Fasteignum heimild til að vinna tillögu að skipulagslýsingu og í kjölfarið deiliskipulagi svæðisins. Skipulagslýsing skal liggja fyrir 1. október 2026 og stefnt er að því að deiliskipulagstillagan verði auglýst til kynningar í febrúar 2027 og að skipulagsferlinu ljúki í maí 2027.

Skipulagstillaga fyrir svæðið: 130 hús og um 260 íbúðir. Mynd: Batteríið Arkitektar.
Lóðarleigusamningar sem gerðir verða á grundvelli samkomulagsins verða til 10 ára, með möguleika á framlengingu. Einingarnar eru jafnframt hannaðar þannig að hægt verði, að loknum 10 ára samningstíma, að fjarlægja þær og nýta á annarri staðsetningu, án umfangsmikils niðurrifs eða förgunar. Það er hugsað sem grænt skref í uppbyggingu svæðisins.
Jafnframt á Styrkás Fasteignir þá rétt til úthlutunar lóða á svæðinu til uppbyggingar varanlegs íbúðarhúsnæðis, þannig að fjárfesting í götum, stígum og lögnum nýtist áfram þegar svæðið fer í varanlega uppbyggingu.