Útboð – Skarðshlíð 1. áfangi
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í gatnagerð og lokafrágang núverandi gatna í Skarðshlíð 1. áfanga. Útboðsgögn verða seld hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu bæjarins frá og með 26. júlí. Verð kr. 5.000.- Tilboð verða opnuð mánudaginn 15. ágúst kl. 11:00.
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í gatnagerð og lokafrágang núverandi gatna í Skarðshlíð 1. áfanga vegna breytts skipulags í hverfinu, ásamt breytingum á fráveitulögnum, neysluvatnslögnum og lögnum veitna.
Útboðsgögn verða seld hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2, frá og með þriðjudegi 26. júlí 2016. Verð kr. 5.000,-
Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn 15. ágúst 2016, kl. 11:00.
Helstu magntölur eru:
- Uppúrtekt úr götum og stéttum 1.870 m3
- Hreinsun yfirborðs í núverandi götum 5.165 m2
- Upphækkun núverandi brunna 24 stk.
- Upphækkun núverandi niðurfalla 30 stk.
- Snjóbræðslulagnir 920 m
- Lagnaskurðir fyrir veitur 450 m
- Neðra burðarlag 1.240 m3
- Efri burðarlög 5.950 m2
- Malbikun 5.810 m2