Let's get the children active this summer and send them to a game developer.
Skemmtilegt sumar bíður hafnfirskum börnum í tómstundasmiðjum. Fjölmargar smiðjur eru í boði fyrir börnin sem ljúka nú 4. – 7. bekk. Ævintýri, vísindatilraunir, hreyfing og sköpun. Smiðjurnar bíða!
Já, sumarið er tíminn!
Skemmtilegt sumar bíður hafnfirskum börnum í tómstundasmiðjum. Fjölmargar smiðjur eru í boði fyrir börnin sem ljúka nú 4. – 7. bekk. Ævintýri, vísindatilraunir, hreyfing og sköpun. Tómstund heldur úti smiðjunum. Markmiðið er að virkja börnin okkar í sumarfríinu, gefa þeim tækifæri á að hitta önnur börn, kynnast áhugaverðum viðfangsefnum og endurvekja gömul áhugamál. Þau hittast í Lækjaskóla og Áslandsskóla.
Fyrsta vika – Ævintýri
- júní: Ratleikur og bingo
- júní: Persónusköpun- og sögusköpun, já og kortagerð
- júní: Vopnagerð og Escape Room
- júní: Varúlfur og dorgveiðikeppni
- júní: Sparinesti, ævintýramynd og víkingahátíð
Önnur vika – Vísindatilraunir
- júní: Tie Dye og útileikir
- júní: ísgerð, slím og blek
- júní: Eldgosagerð
- júní: Tilrauna-Gettu betur
Þriðja vika – Hreyfing
- júní: Pógó mót og Tarzan leikur
- júní: Ganga og kubbakeppni
- júní: hjólaferð og körfubolti
- júní: Skotbolti/brennó og bandí
Fjórða vika – Sköpun
- júlí: Leir og tískugerð.
- júlí: Málning og tískugerð
- júlí: Skartgripagerð og mála á bolla
- júlí: Klipart og karaoke
- júlí: Tískusýning

Tómstund skiptist upp í fjögur tímabil, hvert tímabil er viku í senn. Börnin velja sér smiðjur sem þau vilja sækja í viðkomandi viku. Engin aldurskipting og allir sem eru skráðir geta mætt bæði fyrir og eftir hádegi. Vikan kostar 2968 kr.
Sjá facebooksíðu Tómstundar 👉 here
Skráning 👉 here