Category: News

2022 local elections

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 14. maí 2022 Kjörfundur í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnarkosninganna 14. maí 2022 stendur yfir frá kl. 9 – 22.  Kjörstaðir í Hafnarfirði eru tveir,  Lækjarskóli að Sólvangsvegi 4 og Ásvellir íþróttamiðstöð. Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað. Kjörstjórn Yfirkjörstjórn í Hafnarfirði skipa:  Þórdís Bjarnadóttir, […]

HönnunarMars í Hafnarfirði 2022

Sérstök athygli vakin á gróskumikilli hönnun í Hafnarfirði  Lögð verður sérstök áhersla á hönnun í söfnum og menningarhúsum Hafnarfjarðar næstu dagana. Hafnarborg, Bókasafn Hafnarfjarðar og Bæjarbíó eru í hópi þeirra rúmlega 100 sýninga, 400 þátttakenda og 250 viðburða sem taka þátt í Hönnunarmars 2022, stærstu hönnunarhátíð landsins. Með þátttökunni vill Hafnarfjarðarbær vekja sérstaka athygli á […]

Hafnarfjörður Summer Job Scheme – open for applications for 14 to 17-year-olds

Sumarið 2022 fá 14 – 17 ára unglingar (fæddir árin 2005 – 2008) vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinnuskólinn sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann. Starfsfólk Vinnuskólans sinnir því mikilvægu hlutverki í því að skapa vænta ásýnd bæjarins, að […]

Hjartasteinn í minningu Guðrúnar Helgadóttur

Fjölskylda Guðrúnar afhjúpar minnisvarða í hjarta Hafnarfjarðar Hjartasteinn í minningu Guðrúnar Helgadóttur var í dag lagður í hjarta Hafnarfjarðar fyrir framan Bæjarbíó. Hugmynd að fallegum virðingarvotti og minnisvarða kviknaði fyrst í samtali við höfundinn sjálfan í kjölfar þess að hún var heiðruð í Hafnarfirði fyrir ritverk hennar og framlag til íslenskrar menningar í tengslum við […]

Hraunvallaskóli kominn í úrslit í Skólahreysti

Hraunvallaskóli tryggði sér farseðil í úrslit Skólahreysti í gær eftir harða keppni Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda.  Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar hafa tekið virkan þáttí Skólahreysti og það með góðum árangri. Eftir fimm riðla af Skólahreysti vorið 2022 […]

Viðburða- og menningarstyrkir í kjölfar Covid

Umsóknarfrestur framlengdur til og með 6. maí 2022  Bæjarráð auglýsir sérstaka viðburða- og menningarstyrki í kjölfar Covid-19 lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 6. maí og verða styrkirnir teknir til úthlutunar í bæjarráði.  Umsækjendur verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Til dæmis með fastri búsetu einstaklinga, með því að viðburðurinn eða verkefnið […]

Hreinsunardagar 2022– gámar við grunnskóla

Hreinsunardagar 2022 – gámar fyrir garðúrgang við grunnskóla Dagana 25. maí – 29. maí 2022 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám við alla grunnskóla hverfanna. Gámarnir verða við skólana frá kl. 17 miðvikudaginn 25. maí til loka dags sunnudaginn 29. […]

Heildarstefna fyrir Hafnarfjörð samþykkt samróma

Skýr framtíðarsýn sem unnin var í víðtæku samráði Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samróma á fundi sínum rétt fyrir páska framlagða framtíðarsýn, meginmarkmið og stefnumarkandi áherslur fyrir Hafnarfjörð sem ganga þvert á alla málaflokka sveitarfélagsins. Heildarstefna Hafnarfjarðar til ársins 2035 styður við mótun áherslna til skemmri tíma og munu ráð og nefndir endurskoða áherslur árlega og marka […]

Opið fyrir skráningu á frístundaheimili skólaárið 2022-2023

Opið fyrir skráningu á frístundaheimili skólaárið 2022-2023 Frístundaheimilin í Hafnarfirði eru í boði fyrir börn í 1.-4. bekk og starfa við alla grunnskóla sveitarfélagsins. Hlutverk þeirra er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur með m.a. hópastarfi, smiðjum, útiveru og vali. Markmið frístundaheimilanna er að hvert barn fái að njóta sín […]

Community of Health and Creativity at St. Jó's Centre for Wellbeing

St. Jósefsspítali blómstrar í nýju hlutverki   Lífsgæðasetur St.Jó nálgast óðfluga þau sögulegu og merku tímamót að fylla allar hæðir og öll rými í gamla St. Jósefsspítala af starfsemi sem tengja má heilsu, lífsgæðum og sköpun. Nú hafa 16 fyrirtæki og félagasamtök komið sér fyrir í setrinu og eru þegar farin að bjóða þjónustu sem […]