Bæjarráð veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum eða einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröð sveitarfélagsins. Úthlutun styrkja fer fram tvisvar á ári og nú er komið að fyrri úthlutun ársins í ár. Umsóknarfrestur er til 20. mars 2020. Umsækjendur […]
Category: News
Sumargöngur – Óskað eftir hugmyndum
Gengur þú með hugmynd að sumargöngu í maganum?Alla fimmtudaga í sumar verða gengnar menningar- og heilsugöngur um Hafnarfjörð þar sem íbúar og gestir fá að heyra áhugaverðan fróðleik um bæinn og fá tækifæri til heilsubótar. Hátt í þúsund manns tóku virkan þátt í göngunum síðasta sumar.Dagskrá sumarsins er nú í undirbúningi og við leitum til […]
Rauð veðurviðvörun – allt skólahald fellur niður
<<English below >> Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftakaveðurs á morgun, föstudag 14. febrúar. Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið frá kl. 7 í fyrramálið sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Reglulegt skólahald fellur niður en leikskólar og […]
Hellnahraun 3. áfangi
Endurskoðun á deiliskipulagi Hellnahrauns 3.áfanga í Hafnarfirði Borgahella, Dofrahella, Búðahella, Straumhella 1-8 Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þann 8. janúar 2020 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi þriðja áfanga Hellnahrauns í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða austur hluta svæðisins, þ.e. þann hluta deiliskipulagsins sem innifelur allar lóðir við Borgahellu, Dofrahellu […]
Viljum vinna með foreldrum
Hlutverk barnaverndar er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð. Barnavernd leitast við að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við. Bæjarblaðið Hafnfirðingur hitti Helenu Unnarsdóttur, deildarstjóra barnaverndar hjá Hafnarfjarðarbæ , […]
Óskað er eftir tilboðum lögaðila í lóðina Hrauntungu 5
Óskað er eftir tilboðum lögaðila í lóðina Hrauntungu 5. Á lóðinni er heimilt að byggja þrjú tveggja hæð íbúðarhús. Þar af tvö parhús og eitt einbýlishús, samtals fimm íbúðir. Á lóðinni standa tvö hús sem skulu víkja og skal tilboðsgjafi fjarlægja húsin af lóðinni. Deiliskipulag fyrir lóðina tók gildi 16. október 2019. Búið er að […]
Bergsprengingar á Reykjanesbraut halda áfram
Framkvæmdir við breikkun Reykjanesbrautar, frá Kaldárselsvegi vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót sem staðið hafa yfir frá því haustið 2019 halda áfram og eru verklok þessa áfanga áætluð 1. nóvember 2020. Við bendum á upplýsingasíðu um breikkun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði en tvöföldun brautarinnar er samvinnuverkefni Vegagerðarinnar og Hafnarfjarðarbæjar. Sprengingar næstu vikurnar Bergsprengingar, sem hófust við Reykjanesbrautina í síðustu […]
Flaggað fyrir Hildi Guðna
Flaggað er nú á Ráðhúsi Hafnarfjarðar í tilefni þess að Hafnfirðingurinn Hildur Guðnadóttir hlaut í nótt Óskarsverðlaun fyrir tónlist sína í myndinni Joker og er þar með fyrst Íslendinga til að hljóta þessi virtu verðlaun Akademíunnar. Hildur hefur að undanförnu hreppt eftirsótt og virt verðlaun fyrir tónlistina í Joker og í sjónvarpsþáttunum Chernobyl. Eins og […]
Suðurgata 40 – lóð fyrir nýbyggingu eða flutningshús
Lóð fyrir flutningshús eða nýbyggingu – Suðurgata 40 Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa til úthlutunar lóð fyrir nýbyggingu eða flutningshús að Suðurgötu 40. Um er að ræða einbýlishúsalóð og er lóðarverð lágmarksverð einbýlishúsalóða. Bæði einstaklingar og lögaðilar geta sótt um. Ef sótt er um lóðina fyrir flutningshús skulu umsækjendur skila ítarlegri greinargerð um það hús sem fyrirhugað […]
Vitinn: Unglingur í uppreisn sem fann sinn farveg
Sviðsljósið í Vitanum þessa vikuna á John Friðrik Bond Grétarsson, verkefnastjóri Hamarsins, ungmennahúss sem opnað var í gömlu Skattstofunni að Suðurgötu 14 í Hafnarfirði fyrir rétt tæpu ári síðan. Í þessum þætti segir John okkur frá orkunni sem hann var uppfullur af sem ungt barn og baráttu hans við að beisla orkuna og finna sinn […]