Category: News

Closed on Strandgata south of Reykjanesbraut

Á morgun, miðvikudaginn 11. mars, milli frá kl. 9:30-12, mun verktaki loka fyrir umferð um Strandgötu sunnan Reykjanesbrautar vegna uppsetningar á vinnustaðamerkingum. Hjáleiðir eru um Krýsuvíkurgatnamót og Kaldárselsveg. Opið er fyrir gangandi vegfarendur. Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning.

Collective agreement signed and strike called off

Kjara­samn­ing­ur var und­ir­ritaður á milli Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga og bæj­ar­starfs­manna­fé­laga inn­an BSRB rétt fyr­ir miðnætti í kvöld hjá Rík­is­sátta­semj­ara. Verk­falli fé­lag­anna gagn­vart Sam­bandi ís­lenskra sveit­ar­fé­laga hef­ur því verið af­lýst. Samn­ing­ur­inn tek­ur til um 7000 starfs­manna sveit­ar­fé­laga um allt land og gild­ir til 31. mars 2023. Starfsemi sveitarfélagsins mun því haldast óbreytt og ekki koma til […]

Hafnarfjörður annual festival postponed – preventative measures reiterated

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónuveiru (COVID-19). Fyrstu smit innanlands voru staðfest í gær og eru þau orðin a.m.k. fjögur talsins. Í kjölfarið var ákveðið að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna. Það er gert m.a. á grunni þess að sýkingin er nú farin að breiðast út innanlands. Neyðarstjórn Hafnarfjarðarbæjar hefur […]

Closure of services and activities for people in a vulnerable position

Hafnarfjarðarbær hefur tekið ákvörðun um lokun á starfsstöðvum sveitarfélagsins sem halda úti þjónustu og starfsemi fyrir fólk sem er í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónuveiru (COVID-19) og er ákvörðun tekin með hliðsjón af þeirri breytingu.  Allir hlutaðeigandi verða látnir vita um leið […]

Free health checks postponed

Ákveðið hefur verið að fresta um óákveðinn tíma ókeypis heilsufarsmælingum í Hafnarfirði sem áttu að fara fram laugardagana 14. og 21. mars. Ákvörðun er tekin í ljósi mikils álags á heilbrigðiskerfið í heild sinni þessa dagana. Auglýsing og kynning fer af stað aftur þegar nýjar dagsetningar hafa verið ákveðnar. Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning. 

Impact on services in the event of a strike

Mikilvægt er að allir hlutaðeigandi fylgist vel með fréttum af fyrirhuguðu verkfalli. Öll starfsemi sveitarfélagsins mun haldast óbreytt ef ekki verður af verkfalli. Fyrirhugað verkfall félagsmanna hjá Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar og BSRB hefst mánudaginn 9. mars. Fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum má skipta í tvo hluta. Annars vegar munu félagsmenn leggja niður störf á fyrirfram ákveðnum dögum þ.e. dagana […]

Do you want to be a foster parent?

Barnavernd Hafnarfjarðar leitar að tveimur fjölskyldum sem eru tilbúnar að taka á móti börnum sem vista þarf utan heimilis í skemmri tíma. Hlutverk vistforeldra er að veita börnum móttöku, þar með talið í bráðatilvikum til að tryggja öryggi barnanna, greiða vanda þeirra eða til könnunar á aðstæðum þeirra. Þegar barn er á heimilinu er lögð […]

Students are beaming with energy

Öskudagur nýttur í gott málefni Nemendur og kennarar í unglingadeild Áslandsskóla ákváðu að nýta öskudag til að leggja verkefninu Perlað af krafti lið.  Verkefnið er ein helsta fjáröflunarleið Krafts stuðningsfélag þeirra sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Ein helsta fjáröflunarleið Krafts er sala á perluarmböndum með áletruninni „Lífið er núna“. Armböndin eru eingöngu framleidd […]

Town Council Meeting, 4 March

Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 3. mars. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu

Ásvallabraut – road construction

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við nýja Ásvallabraut í Hafnarfirði, ásamt gerð undirganga, veitulagna fyrir Vatnsveitu Hafnarfjarðar og HS veitur, gerð göngu- og hjólastíga, mana, landmótunar og gróðursvæða. Útboðsgögn verða seld í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2, frá og með þriðjudegi 3. mars 2020. Verð kr. 5.000,- Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 24. […]