Category: News

Góð líðan og ánægja nemenda í grunnskólum bæjarins

Niðurstöður viðhorfskannana Skólapúlsins í leik- og grunnskólunum gefa skýrt til kynna að nemendum í grunnskólum bæjarins líður vel, þeir lifa heilbrigðu lífi, eru virkir í námi og hafa gott sjálfsálit. Sveitarfélagið skorar hæst á meðal sveitarfélaga sem taka þátt í könnuninni varðandi þátttöku barna í leikskólastarfi án aðgreiningar. Leik- og grunnskólar Hafnarfjarðar taka allir virkan […]

Tilboð lögaðila í Hraunskarð 2

Óskað eftir tilboðum lögaðila í 32 íbúða fjölbýlishúsalóð að Hraunskarð 2. Búið er að marka lágmarksverð í lóðina og teljast tilboð undir lágmarksverði ógild.  Tilboð í lóð ásamt öllum fylgigögnum þurfa að berast fyrir kl. 10 mánudaginn 19. nóvember. Sama dag á sama tíma verða tilboðin opnuð.  Tilboð í lóð verða tekin fyrir á bæjarráðsfundi […]

Bæjarstjórnarfundur 14. nóvember

Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn  14. nóvember. Formlegur fundur hefst kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34.     Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu

Dagur í dag er helgaður baráttunni gegn einelti

Dagurinn 8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti í skólum. Á þessum degi eru jákvæð samskipti í fyrirrúmi og er skólasamfélagið hvatt til að taka höndum saman gegn einelti. Skólarnir í Hafnarfirði hafa tekið virkan þátt í verkefninu og í fjölmörgum skólum hefur vinavika verið í gangi alla vikuna ásamt vinaleikum og fjölgreindaleikum […]

Umferð beint um hjáleið á Kaldárselsvegi

Þessa dagana stendur yfir endurgerð á Kaldárselsvegi og er umferð nú beint um hjáleið. Verið er að vinna í uppsetningu á bráðabirgðalýsingu til að auka öryggi á svæðinu og er vonast til að þeirri vinnu ljúki fyrir helgi.  Stefnt er að því að umferð verði hleypt á nýja Kaldárselsveginn í lok nóvember.  Lokið verður við […]

Agi í rekstri, frekari uppbygging og bætt þjónusta

Frumvarp að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2019 og 4 ára áætlun 2019-2022 verður lögð fram í bæjarstjórn til fyrri umræðu miðvikudaginn 14. nóvember. Síðari umræða um fjárhagsáætlun verður í desember. Álagningarstuðull fasteignagjalda lækkaður og komið til móts við barnafjölskyldur Í fjárhagsáætlun ársins 2019 verður álagningarstuðull fasteignaskatts lækkaður og eru það viðbrögð við mikilli hækkun á […]

Ásvallalaug lokuð um helgina

Ásvallalaug verður lokuð föstudaginn 9. nóvember, laugardaginn 10. nóvember og sunnudaginn 11. nóvember vegna Íslandsmeistaramóts í sundi.  Suðurbæjarlaug verður opin um helgina frá kl. 8-18 laugardag og kl. 8-17 á sunnudag.  Sjáumst í sundi!

Sandur í boði fyrir íbúa

Það er brostið á með snjó og hálku og því gott að allir detti í þann gírinn að græja sig vel fyrir veturinn. Nokkur hálka hefur verið að myndast á götum, göngustígum og bílaplönum út um allan bæ síðustu daga og ljóst að snjór og hálka færist í aukana næstu vikur og mánuði. Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar […]

Faghópur leikskóla tekinn til starfa

Faghópur leikskóla hittist nýlega á sínum fyrsta fundi. Hópurinn, sem skipaður var af fræðsluráði Hafnarfjarðar, mun vinna áfram með tillögur sem lagðar voru fram í skýrslu starfshóps um starfsaðstæður í leikskólum Hafnarfjarðar sem starfaði á vorönn 2018.  Hópurinn mun jafnframt koma með fleiri nálganir og hugmyndir sem stuðlað geta að bættum aðstæðum í leikskólum bæði […]

Opnunarhátíð í Skarðshlíðarskóla

Það ríkti mikil gleði í Skarðshlíðarskóla þegar nemendur, kennarar og aðrir gestir opnuðu skólann formlega. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri óskaði börnunum innilega til hamingju með nýja skólann sinn og sagðist hlakka til að fylgjast með þeim vaxa og dafna í fallegum skóla í fallegu umhverfi. Skólinn þykir afar bjartur og skemmtilegur og mikið um opin rými. […]