Category: News

Bæjarstjórnarfundur 31. janúar

Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 31. janúar. Fundurinn hefst kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34.   Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu Útsending hefst stundvíslega kl 17:00. 

Gegn munntóbaki og rafrettum

Í janúar heimsækir tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson alla nemendur í 8. bekk grunnskóla Hafnarfjarðar. Jón spjallar við krakkana í hverjum og einum bekk um heilbrigða lífshætti og fjallar sérstaklega um munntóbaksnotkun og rafrettur. Hann kemur með skemmtilegar sögur úr lífinu og syngur munntóbakslag þar sem ástin og munntóbak koma við sögu. Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbær […]

Hreinsun gróðurbeða

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í hreinsun gróðurbeða meðfram stofnleiðum í Hafnarfirði.  Beðin eru samtals um 11.753 m2. Um er að ræða beð að mismunandi lögun og mismiklum gróðri. Tilboð verða opnuð hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu þann 2. febrúar 2018 kl 10:30 Útboðsgögn eru til sölu hjá umhverfis- og  skipulagsþjónustu Hafnarfjarðar, Norðurhellu 2. Verð kr. 2.000,-

FRÉTT UM HAMRANESLÍNU FAGNAÐ

Vegna fréttar Fréttablaðsins í gær, föstudaginn 19. janúar þá er það  rétt að nokkrum lóðum í Skarðshlíð hefur verið skilað inn til bæjarins en stærstur hluti þeirra hefur farið í úthlutun þeirra sem voru á biðlistum eftir lóðum í hverfinu. Þeir aðilar sem skilað hafa lóðum hafa einkum borið við tveimur ástæðum. Annarsvegar að fjármögnun […]

Íbúafundur vegna borgarlínu

Þann 18. janúar var haldinn kynningarfundur vegna Borgarlínu í Hafnarborg. Hrafnkell Á. Proppé svæðisskipulagsstjóri hélt erindi um hið nýja kerfi almenningssamgangna sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ásamt ásamt Ólöfu Kristjánsdóttur verkfræðingi og fagstjóra samgöngu hjá verkfræðistofunni Mannvit sem kynnti skýrslu Mannvits um úttekt á göturými. Rúmlega hundrað manns sóttu fundinn og fjölmargir fylgdust með beinni útsendingu […]

Rekstur veitingasölu í Hafnarborg

Óskað er eftir tilboðum í leigu á veitingarými  í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar að Strandgötu 34, Hafnarfirði. Veitingaaðstaðan býður upp á ýmsa möguleika, aðstaðan hefur sérstakan inngang og er rýmið aðskilið frá annarri starfsemi Hafnarborgar. Vinnuaðstaðan býður upp á framreiðslu á kaffiveitingum og léttum málsverðum. Gert er ráð fyrir að nýr rekstraraðili taki til […]

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2018. Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði.  Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Umsóknum og ábendingum skal skilað […]

Bæjarstjórnarfundur 17. janúar

Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 17. janúar. Fundurinn hefst kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34.  Fundinum er streymt beint á heimasíðu.  Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu Útsending hefst stundvíslega kl 17:00. 

Hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag

Hafnarfjarðarhöfn og Hafnarfjarðarbær, í samvinnu við Arkitektafélag Íslands, efna til opinnar hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Flensborgarhafnar og Óseyrarsvæðis, sem er í dag hluti hafnarsvæðis Suðurhafnar í Hafnarfirði. Fyrirhugað er að skipuleggja svæðið upp á nýtt með breyttum forsendum, endurskilgreindum skipulagsmörkum og endurskoðuðu aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Meginmarkmið samkeppninnar er að kalla fram hugmyndir um blandaða og þétta byggð […]

Hálka, sandur og salt

Mikil hálka er á götum, göngustígum og bílaplönum út um allan bæ þessa dagana vegna óvenjulegra veðuraðstæðna. Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar er á vakt allan sólarhringinn við söltun og söndun en það dugar ekki í öllum tilfellum til. Salt og sandur geta komið sér vel eins og spáin er næstu daga. Íbúar geta sótt sand í Þjónustumiðstöðina […]