Næst komandi þriðjudagskvöld 14. nóvember verður íbúafundur með bæjarstjóra og sviðsstjórum þar sem fjárhagsáætlun bæjarins 2018. Fundurinn er haldinn í Bæjarbíói og hefst stundvíslega kl. 20. Gera má ráð fyrir að fundurinn stendur yfir í c.a. 1,5 klst. Á fundinum munu bæjarstjóri og sviðsstjórar Hafnarfjarðarbæjar kynna helstu áherslur og niðurstöður í frumvarpi að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar […]
Category: News
Tillögur að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Austurgötu 36
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 03.10.2017 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Austurgötu 36 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Jafnframt verður tillagan grenndarkynnt. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Hafnarfjörður miðbær. Niðurrif núverandi húss hefur verið heimilað. Í deiliskipulagsbreytingunni felst að lóðarmörk við götu verða […]
Traustur rekstur, þjónusta efld og uppbygging framundan
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2018 verður lögð fram í bæjarstjórn til fyrri umræðu á miðvikudaginn. Áætlunin ber þess skýr merki að umbætur í fjármálum sveitarfélagsins undanfarin ár eru að skila sér til bæjarbúa. Framundan er uppbygging á þjónustu á hinum ýmsu sviðum sveitarfélagsins, viðhald á eignum bæjarins verður verulega aukið og framkvæmdir verða meiri en […]
Bæjarstjórnarfundur 8. nóvember
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 8. nóvember. Fundurinn hefst kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Fundinum er streymt beint á heimasíðu. Kynningarfundur um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstað og fyrirtækja hans 2018 og 2019-2021 hefst kl. 16 þennan sama dag. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í […]
Fyrsta alvöru haustlægðin á morgun
VIÐVÖRUN: Á morgun er spáð djúpri lægð yfir landinu með suðaustan stormi og rigningu. Sjá hér: http://www.vedur.is/vidvaranir FESTA ÞARF LAUSA HLUTI OG HUGA AÐ NIÐURFÖLLUM. Samkvæmt spánni eins og hún er núna þarf ekki að raska skólastarfi en við fylgjumst með gangi mála og uppfærum þær upplýsingar hér.
Framtíð St. Jósefsspítala
Lífsgæðasetur, þjónustuhús fjölskylduþjónustu og héraðsskjalasafn eru á meðal tillagna starfshóps sem skyldi vinna að mótun framtíðarstefnu um nýtingu á St. Jósefsspítala. Starfshópurinn hafði að leiðarljósi orðin HEILSA – SAMFÉLAG – SKÖPUN í vinnu sinni. Þá segir starfshópurinn að brýnt sé að hafa í huga að húsnæðið verði sjálfbært, fjölnota og sveigjanlegt. Starfshópurinn skilaði skýrslu til […]
Skólamatur tekið við skólamáltíðum
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum og miðlum Hafnarfjarðarbæjar þá náðum Hafnarfjarðarbær og Skólaaskur (ISS) saman um samningslok í þessum mánuði og gert er ráð fyrir því í þeim samningum að verkefni þeirra ljúki í dag 31. Október. Samningar náðust við Skólamat um að taka við afgreiðslu skólamáltíða á morgun miðvikudaginn 1. nóvember. Þessar breytingar voru […]
Fulltrúar nemendaráða funda
Miðvikudaginn 25. október síðast liðin var haldið námskeið fyrir fulltrúa í stjórnum nemendafélaga grunnskólanna í Hafnarfirði. Markmið dagsins er að efla starf nemendafélaganna, leyfa fulltrúum nemendaráðanna að kynnast og leggja drög að samstarfi vetrarins. Farið var í hópefli og yfir grunnatriðin í því hverju það felst að vera í nemendaráði. Þá þjálfuðust unglingarnir í undirbúningi […]
Kjörfundur í Hafnarfirði
Kjörfundur í Hafnarfirði vegna alþingiskosninga 28. október 2017 hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli og Víðistaðaskóli Allar upplýsingar um alþingiskosningarnar 2017 er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins kosning.is. Kjörskrá vegna alþingiskosninganna 28. október 2017 liggur frammi í þjónustuveri á í ráðhúsi Hafnarfjarðar Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði. Kjósendur geta kannað hvar þeir eru […]
Hafnarfjarðarbær kaupir gömlu skattstofuna
Í dag undirrituðu Fjármála- og efnahagsráðuneytið fyrir hönd ríkissjóðs og Hafnarfjarðarbær kaupsamning um Suðurgötu 14 í Hafnarfirði. Um er að ræða tæplega 1300 fermetra húseign sem áður hýsti gömlu skattstofuna. Hafnarfjarðarbær hyggst nýta húsnæðið fyrir vinnustað og þjónustu fyrir fatlað fólk, auk annarrar starfsemi sem rúmast getur í húsinu. Kaupverð eignarinnar er 256 milljónir og […]