Miðvikudagurinn 12. október er tileinkaður forvörnum. Forvarnardagurinn var fyrst haldinn haustið 2006 og er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Dagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra […]
Category: News
Ríkissjóður ábyrgist rekstur
Ríkissjóður ábyrgist rekstur hjúkrunarheimilis Viðræður hafa staðið yfir síðustu mánuði milli Hafnarfjarðarbæjar og velferðarráðuneytis eftir að sveitarfélagið fór þess á leit við ráðuneytið að samningur frá 2010 um uppbyggingu og rekstur á 60 rýma hjúkrunarheimili í Hafnarfirði skv. svokallaðri leiguleið yrði endurskoðaður. Samkomulag hefur nú náðst um breytingar á ákvæðum í eldri samningi hvað varðar […]
Bæjarstjórnarfundur 12. okt
Bilun er í streymi á beinni útsendingu frá bæjarstjórnarfundi og liggur útsending niðri í augnablikinu. Verið er að vinna að lagfæringu og vonir standa til þess að útsending komist í lag innan tíðar. Fundurinn er tekinn upp og verður settur á netið um leið og honum lýkur. ______________________________ Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 12. […]
Frístundaheimili Hauka
Haukar reka áfram frístundaheimili. Hafnarfjarðarbær og Knattspyrnufélagið Haukar hafa gert samning um að Haukar með stuðningi Hafnarfjarðarbæjar reki áfram frístundaheimili fyrir börn á aldrinum 6 til 9 ára. Frístundaheimilið er rekið á Ásvöllum og eru í dag 55 börn skráð í frístund og fjölgar þeim í 60 á næstu dögum. Hér er um að ræða […]
Skipulagslýsing – vatnsvernd
Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna vatnsverndarmarka til samræmis við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. Á fundi Bæjarráðs Hafnarfjarðar þann 11. ágúst 2016 var bókað: Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05.2016, 2013-2025 fyrir breytingu á mörkum vatnsverndar í landi Hafnarfjarðar, og hún auglýst í samræmi við 31.gr. laga 123/2010. Samþykkt með 5 […]
Skuggakosningar í Flensborg
Skuggakosningar verða haldnar í Flensborgarskóla fimmtudaginn 13. október. Verkefnið gengur út á það að virkja ungmenni til þátttöku í lýðræði og munu ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna fá tækifæri til að halda kynningar í hádegishléum og taka þátt í pallborðsumræðum í aðdraganda kosninganna. Skuggakosningar í Hafnarfirði var eitt þeirra verkefna sem hlaut styrk úr Jafnréttissjóði Íslands í […]
Heimanámsaðstoð
Heimanámsaðstoð fyrir nemendur með erlendan bakgrunn Heimanámsaðstoð er nú í boði fyrir nemendur með erlendan bakgrunn í 8.-10 bekk í Hafnarfirði. Verkefnið er ætlað þeim nemendum sem vantar aðstoð við heimanám og hafa áhuga að hittast einu sinni í viku og fá aðstoð frá sjálfboðaliðum. Heimanámsaðstoðin er í boði alla miðvikudaga frá kl. 16:30 – […]
Byggðasafn í bleiku ljósi
Hinn formlegi bleiki mánuður er genginn í garð þar sem bleiki liturinn tekur öll völd. Við hjá Hafnarfjarðarbæ böðum okkur með bleikum ljósum við elsta hús Hafnarfjarðar, sjálft Sívertsen-húsið og Lækinn í október og viljum með því sýna stuðning við baráttuna gegn krabbameini hjá konum. Hinn eiginlegi bleiki dagur er föstudagurinn 14.október og munu allir […]
Jólahús – opið fyrir umsóknir
Já, jólin nálgast óðfluga. Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorp Hafnarfjarðar 2016. Sem fyrr vill Jólaþorpið fá til liðs við sig einstaklinga, samtök og fyrirtæki sem hafa til sölu gæðavöru á góðu verði og fjölbreytt úrval varnings með loforði um líf og jólafjör á á sölubásnum. Í Jólaþorpinu eru 20 söluhús, skreytt einingahús sem […]
Alþjóðadagur kennara
Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um heim allan 5. október og hefur svo verið gert síðan 1996. Markmið alþjóðadagsins er að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar inna af hendi á degi hverjum. Til hamingju með daginn kæru kennarar! Metum kennara að verðleikum – styrkjum stöðu þeirra Stofnað var til Alþjóðadags kennara að frumkvæði UNESCO […]