Bæjarráð Hafnarfjarðar veitir félagasamtökum, fyrirtækjum eða einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröð sveitarfélagsins. Verkefni skulu tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti svo sem að þau fari fram í Hafnarfirði eða feli í sér kynningu á einhverju sem viðkemur sveitarfélaginu. […]
Category: News
Sales tents/houses on 17th June
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að leigja söluhús á 17. júní geta sótt um söluleyfi til skrifstofu tómstundamála, netfang: ith@hafnarfjordur.is eða í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötur 6 merktar 17. júní. Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en fimmtudaginn 20. maí kl. 15:00, en þá verður dregið um staðsetningu söluaðila og er aðilum boðið að […]
Mikill áhugi á Víðistaðatúni
Nýlega hóf starfshópur störf á vegum Hafnarfjarðarbæjar sem er ætlað að skoða möguleika á að nýta Víðistaðatún enn betur og móta framtíðarsýn fyrir svæðið. Þann 20.apríl var haldinn íbúafundur um Víðistaðatún, fjölmargir mættu á fundinn og voru líflegar og áhugaverðar umræður.
Menningarstyrkir veittir
Hafnarfjarðarbær veitti menningarstyrki við hátíðlega athöfn í Hafnarborg sl. föstudag og hlutu 23 einstaklingar, menningarhópar eða samtök styrk frá menningar- og ferðamálanefnd í ár. Veittir voru styrkir að upphæð kr. 4.240.000. Að auki fær Gaflaraleikhúsið samkvæmt samningi kr. 20.000.000 á ári. Styrki hlutu: Karlakórinn Þrestir kr. 150.000. Barabörukórinn kr. 150.000. Kór Öldutúnsskóla kr. 200.000 en […]
Bæjarstjórnarfundur 29.apríl
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 29.apríl 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Gefa starfsmönnum frí til að taka þátt í hátíðarhöldum á 19.júní
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag að starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar verði gefið frí frá hádegi 19. júní 2015 í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna. Skipulögð hátíðahöld eru áformuð viða um land þennan dag og með því að gefa frí er starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar gefinn kostur á að taka þátt í þeim. Stofnanir bæjarins […]
Skráning í sumarstarf hafin
Skráning í sumarstarf á vegum Hafnarfjarðarbæjar er hafin á Mínum síðum á www.hafnarfjordur.is - skráning á sumarnámskeið 2015 undir aðrar umsóknir. Á www.tomstund.is/sumarvefur er hægt að skoða framboðið á sumarstarfi í Hafnarfirði. Á vegum Hafnarfjarðarbæjar er boðið uppá leikjanámskeið fyrir 7-9 ára og Tómstund fyrir 10-13 ára börn. Þá verða starfræktir Skólagarðar þar sem börn á aldrinum 7-12 ára hafa forgang að skrá […]
Bjartir dagar 22.-26. apríl
Það verður mikið um dýrðir á menningarhátíð Hafnarfjarðar Björtum dögum sem haldnir verða dagana 22.-26. apríl. Á síðasta degi vetrar syngja fjórðu bekkingar inn hátíðina og sumarið, listamenn bjóða heim á Gakktu í bæinn og Heimahátíðin verður haldin í 13 heimahúsum í miðbænum. Sumri verður fagnað með fjölskyldudagskrá á Sumardaginn fyrsta og á Björtum dögum […]
First of May
Fimmtudagur 23. apríl – 8-17 Ókeypis í sund í Suðurbæjarlaug og Ásvallalaug. Opið frá kl. 8-17. 11 Víðavangshlaup Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni. Keppt er í 7 aldursflokkum. 11-17 Opið í Byggðasafninu. Ókeypis aðgangur. 12-21 Opið í Hafnarborg. Ókeypis aðgangur. 12-17. Íshús Hafnarfjarðar, Strandgata 90. Við kynnum til sögunnar Pop-up verzlun Íshúss Hafnarfjarðar. Verið hjartanlega velkomin. 13 […]
Til skoðunar að breyta innritunarreglum í leikskóla
Á fundi fræðsluráðs í morgun var rætt um stöðu innritunar í leikskóla bæjarins. Í ljósi umræðu og fyrirspurna um innritunarreglur og inntökualdur barna á leikskóla bæjarins að undanförnu vill Hafnarfjarðarbær koma eftirfarandi á framfæri: Samkvæmt innritunarreglum bæjarins fá öll börn inni á leikskóla á árinu sem þau verða tveggja ára. Yngri börn komast einnig inn […]