First weekend opening of the Helliskaffi – Life in Hellisgerði

News

Knútur Hreiðarsson and Theódóra Ingibergsdóttir have opened Helliskaffi. The first opening weekend is coming up.

Helliskaffi í Hellisgerði

„Hún ætlaði aldrei að byrja með matreiðslumanni því að pabbi hennar er kokkur en svo náði hún í mig,“ segir Knútur Hreiðarsson um konu sína Theódóru Ingibergsdóttur þar sem þau standa saman í eldhúsi Helliskaffis og leggja lokahönd á allan undirbúning fyrir fyrstu helgaropnun kaffihússins í Hellisgerði.

Já, þau hjónin eru komin á fulla ferð. „Hún náði í mig,“ segir Knútur. „Já,“ svarar hún. „Höfum það skriflegt. En þú veist líka af hverju það var? Þú gerðir besta Subway-bát sem ég hef smakkað á ævinni,“ segir hún og hlær. Hún verður með annan fótinn í Hellisgerði, en starfar í Klettabæ. Þegar er búið að ráða inn starfsfólk. Draumur orðinn að veruleika.

Kaffihús á daginn, veitingastaður á kvöldin. „Já, íslenskt – skandinavískt tapas væb,“ segir Knútur að hann stefni að. Helliskaffi opnar kl. 11 á virkum dögum en kl. 10 um helgar svo fjölskyldur geta komið og notið þess að vera og njóta alls þess sem garðurinn hefur upp á að bjóða. Þau hafa gert upp gamla bæinn og komið sér vel fyrir í garðinum.

„Við sjáum fyrir okkur notalega stemningu,“ segir Knútur. „Við viljum að fólk gleymi tímanum hér. Séu hér saman og viti ekki hvað tímanum líður. Það er pælingin. Við viljum að þetta verði Central Perk from Friends. Þetta verði miðpunktur þar sem fólk kemur nær sér niður og losar orku eftir amstur hversdagsins.“

Knútur er metnaðarfullur og var meðal stofnenda Le Kock og Deigs.  „Ég hefði aldrei endst í átta ár á Le Kock hefðu þetta bara verið venjulegir hamborgarar. Það er eins hér. Ég gerðist matreiðslumaður til að njóta þess sem ég er að gera. Ég ætla því aðeins að flækja þetta með því að bjóða veitingar sem mér finnst gaman að gera og er stoltur af.“

Knútur á stóra drauma um Hellisgerði. „Ég vil sjá fleiri viðburði á sviðinu og pop-up viðburði frá öðrum matreiðslumönnum. Ég ætla að þróa staðinn áfram, breyta. Aldrei að stoppa,“ segir hann.

„Ég vil að við finnum taktinn næstu mánuði og passa mig á að gleypa allan heiminn ekki strax – eins og ég á til,“ segir hann glettinn. „Ég hlakka til að sjá hvernig Hafnfirðingar munu nýta garðinn sinn og hvet öll til að kíkja á okkur hér.“

Innilega til hamingju með Helliskaffi Theódóra og Knútur – og Hafnfirðingar

Suggestion portal