Hafnarfjörður receives the key to a new library

News

Hafnarfjarðarbær fær í dag lyklavöldin af nýja húsnæðinu sem rýmir nýtt bókasafn bæjarfélagsins í verslunarmiðstöðinni Firði. Stefnt er á að opna það uppsett og tilbúið í byrjun júlí. Bókasafn Hafnarfjarðar lokar á núverandi stað 18. maí.

Hafnarfjörður receives the key to a new library

Hafnarfjarðarbær fær í dag formlega afhent húsnæðið sem rýmir nýtt bókasafn bæjarfélagsins í verslunarmiðstöðinni Firði. Stefnt er á að opna það fyrir bæjarbúum í byrjun júlí. Bókasafn Hafnarfjarðar lokar á núverandi stað 18. maí.

Uppsetning á búnaði á nýjum stað er hafin og undirbúningur flutninga einnig. Afhendingin verður táknræn og lykillinn í formi gagnalykils, því ljóst er að framtíðin býr á nýju bókasafni. Líka þessi stafræna en þó kannski mest þessi mannlega.

Húsnæðið nýja bókasafnsins er tæpir 1.700 fermetrar að stærð. Þar af eru um 550 fermetrar í nýbyggingu Fjarðar við Strandgötu 26-30 sem rís hratt þessa dagana. Breytingarnar og uppbyggingin við Fjörð eru mestu framkvæmdir sem átt hafa sér stað í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi.

Lyklaafhendingin fer fram í dag á sumarkvöldi í verslunarmiðstöðinni Firði kl. 18:45. Opið er til 21:00 og verður Bylgjan í þessu hjarta Hafnarfjarðar. Fyrstu 100 gestirnir fá gjafapoka frá kl. 18. Tilboð er í verslunum og vörukynningar. En þó enn skemmtilegra að frá kl. 18 verða skemmtiatriði; Bjarni Ara, Elvis Presley og María og Sjonni halda stuðinu uppi.

  • Afhendingin á lyklinum verður kl. 18.45. Gestum Fjarðar er boðið að fylgjast með. Þeir fá tækifæri til að sjá glæsilegt húsnæðið fyrir og eftir flutning.
Suggestion portal