Hafnarfjörður Run 11 June – Road closures during the run
Hafnarfjarðarhlaupið er haldið í fjórða sinn annað kvöld. Búast má við töfum á umferð en brautaverðir hleypa umferð í gegnum hlaupaleiðina eftir því sem færi gefst.
Taktu þátt í einu flottasta hlaupi landsins!
Frábærar aðstæður verða annað kvöld þegar The Hafnarfjörður Run fer fram í fjórða sinn. Spáin er eðal og miklar líkur á að fólk sé að fara bæta tímann sinn.
Hlaupaleiðin er einkar áhugaverð. Hún liggur frá miðbænum um íbúða- og atvinnusvæði hafnarinnar. Hafnarfjarðarhöfn og Eimskip opna sérstaklega tollsvæði til að búa til möguleika á einni hröðustu götuhlaupabraut landsins.

Hlaupið er ræst frá Thorsplani. Hlaupið eftir grænu línunni í þá stefnu sem rauðu örvarnar segja til um. Bláu punktarnir tákna brautarverði. Þeir stöðva umferð og hleypa henni áfram eftir því sem færi gefst.
Hafnarfjarðarbær leggur sitt af mörkum! Við lokum vesturakrein Strandgötu (nær sjónum) frá Flensborgartorgi að Fjarðartorgi á meðan á hlaupinu stendur. Því má búast við töfum á umferð.
Starfsmenn, brautarverðir í sjálfboðastarfi, annast götulokanirnar. Hlutverk þeirra verður að tryggja öryggi hlaupara og hleypa umferð í gegnum hlaupaleiðina eftir því sem færi gefst eða beina akandi umferð aðra leið.
Sýnum biðlund og þolinmæði í garð hlaupara og brautarvarða. Hvetjum okkar fólk og gerum upplifunina fyrir okkur öll sem besta.