Organisational change – Selhella 1

News

Í auglýsingu er tillaga að breytingu á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna lóðarinnar Selhella 1. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að lóðin minnkar, nýtingarhlutfall hækkar, aðkomur að lóð og fyrirkomulag bílastæða breytast og að opið skýli á lóð verði fjarlægt. Frestur til athugasemda 1. maí 2017.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna lóðarinnar Selhella 1, Hafnarfirði. 

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 06.09.2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar við Selhellu 1 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna mislægra gatnamóta Krýsuvíkurvegar og Reykjanesbrautar.

Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að lóðin minnkar, nýtingarhlutfall hækkar, aðkomur að lóð og fyrirkomulag bílastæða breytast og að opið skýli á lóð verði fjarlægt.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu Norðurhellu 2, frá 20.03. til 01.05. 2017.

Einnig er hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna HÉR

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 01.05. 2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.

Further information is available from the Environmental and Planning Service.

Suggestion portal