Strandgata 1 tekur stakkaskiptum með kaupum Hlífar

News

Umhverfi gamla bókasafnsins að Strandgötu 1 mun taka stakkaskiptum með kaupum verkalýðsfélagsins Hlífar á húsnæðinu. Ritað hefur verið undir kaupin á húsnæðinu sem og að Austurgötu 4 og 6.

Verkalýðsfélag í hjarta Hafnarfjarðar

Umhverfi gamla bókasafnsins að Strandgötu 1 mun taka stakkaskiptum með kaupum verkalýðsfélagsins Hlífar á húsnæðinu. Ritað hefur verið undir kaupin á húsnæðinu sem og að Austurgötu 4 og 6.

Sex íbúðir auk verslana og þjónustufyrirtækja verða á reitnum. Þá verður starfsemi verkalýðsfélagsins þar til húsa. Félagið stefnir á að setja upp viðburða- og listaverkasýningarsal og efla fræðslu og námskeiðahald félagsins.

„Mér lýst virkilega vel á. Félagið hefur verið að stækka undanfarin ár. Félagsmönnum hefur fjölgað. Húsnæði okkar á Reykjavíkurvegi 64 hefur takmarkað starfsemina. Með nýju húsnæði getum við sinnt betur skyldum okkar gagnvart félagsmönnum og veitt þeim betri þjónustu,“ segir Eyþór Þ. Árnason, formaður Hlífar.

Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir ánægjulegt að uppbygging sé að hefjast á þessum fallega reit í hjarta Hafnarfjarðar. „Verslun, þjónusta og íbúðir verða á reitnum sem gefur miðbænum aukið líf.“

Ráðhúsreiturinn tekur breytingum

Miklar breytingar verða á reitnum við Strandgötu 1. Ráðhústorgið fær upplyftingu samhliða uppbyggingu hjá Hlíf.  Félagið vinnur með Plús Arkítektum að breytingunum og uppbyggingu íbúðanna sex; tveimur á efstu hæð Strandgötu 1, tveimur á Austurgötu 4 og tveimur á Austurgötu 6. Á jarðhæð, Austurgötuhúsanna sem snúa að Strandgötu, verða verslanir- og þjónusta.

Félagið sjálft hyggst nýta tvær hæðir, auk kjallara, í gamla bókasafninu undir starfsemi sína. Það stefnir á að meginstarfsemi félagsins fari fram á jarðhæð og millihæð. Þar verði afgreiðsla, skrifstofur starfsfólks og viðtalsrými vegna erinda sem tengjast kjaramáladeild, orlofsdeild, fræðslumálum og sjúkrasjóði.

Stefnt er að því að á annarri hæðinni verði vinnurými starfsfólks sem ekki væri í daglegri móttöku félagsmanna og að einhverju leyti rými til námskeiðahalds. Millihæðina, þar sem nú er barnadeild bókasafnsins, stefnir félagið á að nýta undir námskeið, standandi sýningu listaverka og einstaka viðburði, til dæmis listasýningar.

Nærri 120 ára saga verkalýðsfélagsins

Verkalýðsfélagið Hlíf var stofnað árið 1907 í Góðtemplarahúsinu við Suðurgötu. Það hefur starfað óslitið síðan. Félagið verður 120 ára gamalt eftir rúmt ár. Það hefur vaxið mjög að stærð og umfangi, ekki síst á síðustu árum. Árið 2025 greiddu ríflega 7.300 einstaklingar til félagsins, einhvern hluta árs.

„Fjöldi fullgildra félagsmanna hefur tvöfaldast frá árinu 2020. Um helmingur félagsmanna er íslenskir ríkisborgarar, en helmingur kemur frá 83 öðrum löndum. Næstum fjórðungur félagsmanna kemur frá Póllandi,“ segir Eyþór.

Hlíf sé ungt félag í þeim skilningi að meginhluti félagsmanna er ungt fólk. Meðalaldur félagsmanna er 33 ár og þrír af hverjum fjórum eru yngri en 40 ára. Konur eru í meirihluta, eða um 53% félagsmanna.

Með kaupunum sér verkalýðsfélagið tækifæri til að efla fræðslustarf. Það hefur nægt rými fyrir núverandi starfsfólk, auk þess sem félagið stefnir á að bæta við sig að minnsta kosti einum pólskumælandi kjaramálafulltrúa. Þá hyggst félagið færa bókhaldið sjálft en því hefur verið útvistað vegna plássleysis á núverandi stað.

Já, starfsemi verkalýðsfélagsins mun eflast á nýjum stað í hjarta Hafnarfjarðar.

Sjáðu skipulagið here.

 

Suggestion portal