Viðburðarík helgi í Hafnarborg
Verja má allri helginni í Hafnarborg. Fjöldi viðburða verða. Já, menningarlífið bíður þín hér í Hafnarfirði.
Hafnarborg uppspretta listarinnar
Helgin verður viðburðarík í Hafnarborg. Saturday, 28th February at 2 p.m. tekur Eggert Pétursson, myndlistarmaður, á móti gestum og segir frá verkum sínum á sýningunni Red, sem lýkur þessa sömu helgi.
Á sýningunni má sjá bæði ný málverk og grafíkverk eftir listamanninn, sem hefur um árabil vakið athygli fyrir einstakan og ástríðufullan áhuga á íslenskri náttúru og þá sérstaklega flóru landsins.
„Þetta er einstakt tækifæri fyrir gesti að koma og hlusta á Pétur segja frá verkum sínum,“ segir Aldís Arnardóttir forstöðumaður safnsins en sýningin hefur staðið frá 20. nóvember.
Það er svo skemmtileg tilviljun að sonur hans Pétur Eggertsson mætir með Lilju Maríu Ásmundsdóttur í Hafnarborg á sunnudag.
Þau frumflytja sunnudaginn 1. mars kl. 20 nýtt verk sem þau hafa samið sérstaklega sem inngrip í yfirstandandi sýningu myndlistarmannsins Unu Bjargar Magnúsdóttur, Filling, í aðalsal Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar, en tónleikarnir eru jafnframt lokahnykkur sýningarinnar.
Lilja og Pétur munu koma til með að ferðast á milli staða innan sýningar Unu Bjargar þar sem nótur og hljóðfæri þeirra verða umbreytast í skúlptúra innan sýningarinnar. Viðburðurinn er hluti af tónleikaröð Hafnarborgar, Hljóðönum.
„Þetta er eins og inngrip í sýninguna,“ segir Aldís. „Já, og virkilega skemmtileg tenging við sýningu Eggerts. Hið sannkallaða litla Ísland,“ segir hún og brosir.
Svo líður helgin og þótt henni ljúki verður nóg um að vera í Hafnarborg. Tuesday, 3rd March at 12 býður safnið ykkur velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg. Þá verður Alda Ingibergsdóttir, sópran, gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar.
Og ef þetta er ekki nóg má benda á tónleika strax í dag. Síðdegistóna Kristjönu Stefánsdóttur kl. 18.
Og þetta er allt gjaldfrálst! Ókeypis! Já, Hafnarfjörður er sko sannkallaður menningarbær. Njótum saman.