Online petition for the 2026 local elections
Yfirkjörstjórn hefur opnað fyrir rafræna meðmælasöfnun í Hafnarfirði fyrir framboð til sveitarstjórnar. Söfnunin er opin til 10. apríl nk., kl. 12:00
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2026
Yfirkjörstjórn hefur opnað fyrir rafræna meðmælasöfnun í Hafnarfirði fyrir framboð til sveitarstjórnar. Söfnunin er opin til 10. apríl nk., kl. 12:00.
Stofnun meðmælasöfnunar til sveitarstjórnar fer fram inni á Ísland.is
Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun fyrir sitt framboð, nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.
Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu.
Hægt er að mæla með framboðum hér:
Hverjum framboðslista skal fylgja:
- Staðfesting á skráðu heiti og listabókstaf stjórnmálasamtaka.
- Yfirlýsing allra þeirra sem eru á listanum um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.
- Nöfn tveggja umboðsmanna.
- Meðmælendalisti – að lágmarki 80 og að hámarki 160 kjósenda í Hafnarfirði.
Yfirkjörstjórn hefur opnað fyrir rafræna söfnun meðmæla á Ísland.is og hvetur framboð til að nýta þann kost. Nánari upplýsingar um rafræna meðmælasöfnun er að finna á kosning.is.
Sé meðmælum safnað á pappír fer yfirkjörstjórn þess á leit við framboð að meðmælalistar verði jafnframt afhentir á tölvutæku formi sem Exel skrá.
Varðandi nánari skilyrði og framboð til sveitarstjórnarkosninga er vísað til Vll. og X. kafla kosningalaga nr. 112/2021.
Vakin er athygli á eftirfarandi reglugerðum:
- Reglugerð um framboð og meðmæli við sveitarstjórnarkosningar
- Reglugerð um réttindi og skyldur umboðsmanna við framkvæmd kosninga
On the web kosning.is er að finna tilkynningu um framboð og umboðsmenn fyrir framboðslista ásamt söfnun meðmæla hyggist framboð safna meðmælum á pappír.
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Hafnarfirði sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl nk., kl. 12.00.
Yfirkjörstjórn mun þann dag hafa aðsetur í fundarsal bæjarráðs Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, 2. hæð frá kl. 10:00 – 12:00 og veita framboðslistum viðtöku.
Yfirkjörstjórn mun á sama stað halda fund laugardaginn 11. apríl nk., kl. 12:00 til þess að úrskurða um framboð og listabókstafi að viðstöddum umboðsmönnum framboðslista.
- Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má nálgast á vefnum: www.kosning.is
Hafnarfirði 4. mars 2026
Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar,
Thordis Bjarnadottir
Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Hildur Helga Gísladóttir