Success Week: We seize the child at the first opportunity
44 börn hittu talmeinafræðing eftir Lesskimun fyrir fyrsta bekk í fyrra. Snemmtæk íhlutun í 1. bekk er eitt nærri 30 úrræðna sem finna má í verkfærakistu Hafnarfjarðarbæjar til að tryggja farsæld barnanna okkar.
Gripið inn í til að tryggja farsæld barna
Nú á skólaárinu hafa 44 hafnfirsk skólabörn af 374 nemendum í 1. bekk fengið aðstoð eftir að Lesskimun fyrir fyrsta bekk var lögð fyrir á haustönn.
„Við vísuðum sextán þeirra í fullt málþroskamat, auk þess sem 14 börn fóru í framburðargreiningu og var vísað áfram í talþjálfun“ segir Bjartey Sigurðardóttir, verkefnastjóri Lestur er lífsins leikur, læsis- og talmeinafræðingur. Hún segir verkefnið gera kennara meðvitaðri um stöðu sinna nemenda, sem er mjög mikilvægt þegar kemur að því að styðja við málþroska og læsi.
Veita hjálp eftir skimun
The project Snemmtæk íhlutun í 1. bekk er eitt nærri 30 úrræðna sem finna má í verkfærakistu Hafnarfjarðarbæjar til að tryggja farsæld barnanna okkar. Verkefnið hefur það að markmiði að finna strax við skólabyrjun þá nemendur sem hugsanlega þurfa á nánari greiningu og/eða stuðningi að halda hvað varðar málþroska og læsi og veita íhlutun við hæfi.
„Þetta er mikilvægt því málþroski og læsi er undirstaða fyrir allt nám,“ segir Bjartey. Börn standi misvel að vígi í upphafi skólagöngu. „Margt veldur því en við grípum þau þar sem þau standa og veitum þeim íhlutun við hæfi.“ Bjartey segir góða samvinnu milli leik- og grunnskólanna í bænum og upplýsingar um stöðu barnanna og fyrri íhlutun fylgi börnunum milli skólastiga.
Finna börnin og styðja kennarana
„En við fylgjumst með þeim í fyrsta bekk til að finna börnin sem að þurfa hugsanlega á frekari greiningu að halda,“ segir hún og að gengið sé úr skugga um að umsjónarkennarar séu meðvitaðir um fyrri greiningar nemenda sinna og að verið sé að vinna samkvæmt þeirri ráðgjöf sem áður hefur verið veitt.
Lesskimun fyrir 1. bekk er lögð fyrir í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar í október. Einkum er horft til þátta er snúa að málþroska, framburði og undirstöðuþáttum læsis. Svo er farið í nánari skimun þegar talið er að þess þurfi.
„Verkefnið fór fyrst af stað skólaárið 2021-2022 og hefur sannað gildi sitt, því þrátt fyrir gott starf í leikskólunum virðast alltaf einhverjir nemendur þurfa á frekari greiningu og íhlutun að halda.“
Farsældarvika í Hafnarfirði
Nú stendur yfir Farsældarvika á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að vekja athygli foreldra á breyttu vinnulagi sveitarfélaganna börnunum í hag. Nú starfa ólíkir sérfræðingar saman að því að tryggja börnunum réttu úrræðin hverju sinni.
„Ég er afar ánægð með þetta vinnulag okkar; Snemmtæk íhlutun í fyrsta bekk, af því mér finnst það gera heilmikið gagn,“ segir Bjartey. Inngripin séu mismikil.
„Það skiptir einnig miklu máli að fræða foreldra um málþroska og leiðir til að efla hann. Það er svo gaman að sjá foreldra verða meðvitaðri um hvað málþroski skiptir miklu máli fyrir allt nám og gefa þeim verkfæri til að styðja við þennan mikilvæga þátt í þroska barnanna.“
- Sjáðu allt um farsæld barna here
Sjáðu námskeið tengd málþroska í grunn- og leikskólum Hafnarfjarðarbæjar
Námskeið – leikskóli
- Að styðja við íslenskunám fjöltyngdra leikskólabarna – hagnýt ráð í daglegu starfi
- Yngstu börnin í leikskólunum
- Málþroski og málörvun ungra barna (dagforeldrar)
- Grunnur að læsi – árangursrík þjálfun hljóðkerfisvitundar í leikskóla
- Hvað er málþroskaröskun DLD – birtingarmyndir einkenna og hagnýt ráð
- Fræðsla til foreldra um undirstöðuþætti máls og læsi
- Framburður leikskólabarna
Námskeið – grunnskóli
Námskeið grunnskólans tengjast gjarnan vinnu með læsi (læsi byggir á málþroska)
- Málþroskaröskun DLD – einkenni og hagnýt ráð
- Efling orðaforða og mikilvægi hans fyrir lesskilning
- Vinna með orðaforða í öllum námsgreinum
- Vinna með orðaforðanámskrár
- Fræðsla um málþroska og læsi fyrir stuðningsfulltrúa og skólaliða
- Vinna í málörvunarhópum
- Að efla grunnorðaforða með því að nota orðaforðaplaköt
- Málörvun á frístundaheimilum
