Hraunvallaskóli fagnar 20 ára afmæli
Hraunvallaskóli í Hafnarfirði fagnaði 20 ára afmæli sínu í gær með hátíðlegri dagskrá í skólanum. Afmælishátíðin markaði mikilvægan áfanga í sögu skólans sem hefur á þessum tveimur áratugum skipað sér sess sem öflugur og metnaðarfullur grunnskóli í Hafnarfirði.
Sterkt skólasamfélag byggt á vináttu, samvinnu og ábyrgð
Hraunvallaskóli í Hafnarfirði fagnaði 20 ára afmæli sínu í gær með hátíðlegri dagskrá í skólanum. Afmælishátíðin markaði mikilvægan áfanga í sögu skólans sem hefur á þessum tveimur áratugum skipað sér sess sem öflugur og metnaðarfullur grunnskóli í Hafnarfirði.
Dýrmæt samfella leikskóla og grunnskóla
Hraunvallaskóli tók til starfa árið 2006 og hefur frá upphafi lagt áherslu á heildstæða skólagöngu barna, þar sem vinátta, samvinna og ábyrgð eru leiðarljós í öllu skólastarfi. Skólinn hefur þá sérstöðu að innan hans starfa bæði leik- og grunnskóli, sem gerir börnum kleift að hefja skólagöngu sína ung og ljúka henni í sama skólasamfélagi. Slík samfella hefur reynst dýrmæt fyrir farsæld og vellíðan nemenda.
Við hátíðina fluttu skólastjóri Hraunvallaskóla og bæjarstjóri Hafnarfjarðar ávörp. Í ræðu sinni lagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri áherslu á þann mikla árangur sem náðst hefur í skólastarfinu og hrósaði bæði nemendum, starfsfólki og foreldrum fyrir öflugt og traust skólasamfélag. „Á þessum tuttugu árum hefur Hraunvallaskóli byggt upp samfélag sem við getum svo sannarlega verið stolt af. Hér ríkir fagmennska, hlýja og metnaður fyrir velferð og farsæld nemenda,“ sagði bæjarstjóri meðal annars.
Í ávarpinu kom einnig fram að nemendur skólans væru kraftmiklir, hæfileikaríkir og metnaðarfullir, og að slíkt ungt fólk væri ómetanleg auðlind fyrir samfélagið í heild. Þá var starfsfólki skólans sérstaklega þakkað fyrir fagmennsku, alúð og daglegt starf í þágu nemenda, auk þess sem mikilvægt hlutverk foreldra og gott samstarf heimilis og skóla var dregið fram.
Opið hús og afrakstur Grúskdaga
Á dagskrá afmælishátíðarinnar voru einnig orð nemenda, tónlistaratriði úr söngleiknum Grease og atriði með Króla. Að lokinni dagskrá í sal var boðið upp á opið hús þar sem foreldrar og nemendur gátu kynnt sér afrakstur Grúskdaga og starfsemi skólans nánar. Hraunvallaskóli er í dag heilsueflandi grunnskóli sem vinnur markvisst að velferð, góðri heilsu og farsæld nemenda, starfsfólks og samfélagsins alls. Tuttugu ára saga skólans ber vitni um metnaðarfullt skólastarf og sterkan grunn til framtíðar.