330 children sang at the Festival of Song for the Children's Arts Festival.

News

Íþróttahúsið við Strandgötu fylltist af söng, gleði og eftirvæntingu í dag þegar Söngvavor fór fram í fyrsta sinn í Hafnarfirði. Þar komu saman öll fimm ára leikskólabörn bæjarins, um 330 talsins, og fluttu lög eftir tónskáld viðburðarins í ár, Dr. Gunna. Börnin sungu fjögur lög eftir Dr. Gunna við undirleik nemenda úr Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, sem gáfu tónleikunum skemmtilegan og lifandi svip. 

330 börn á hafnfirskri Barnamenningarhátíð

Íþróttahúsið við Strandgötu fylltist af söng, gleði og eftirvæntingu í dag þegar Söngvavor fór fram í fyrsta sinn í Hafnarfirði. Þar komu saman öll fimm ára leikskólabörn bæjarins, um 330 talsins, og fluttu lög eftir tónskáld viðburðarins í ár, Dr. Gunna. 

Börnin sungu fjögur lög eftir Dr. Gunna við undirleik nemenda úr Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, sem gáfu tónleikunum skemmtilegan og lifandi svip. Viðburðurinn er samstarfsverkefni leikskólanna í Hafnarfirði og tónlistarskólans og markar þátttöku Hafnarfjarðar í Barnamenningarhátíð í fyrsta sinn. 

Þemað er samkennd og samfélag 

Söngvavor er hluti af anda Barnamenningarhátíðar Reykjavíkurborgar sem haldin er ár hvert í apríl, en nú var hátíðarstemmningin einnig flutt yfir í Hafnarfjörð og sérstaklega til yngstu íbúanna. Undanfarnar vikur hafa börnin æft af kappi í leikskólunum á meðan nemendur tónlistarskólans undirbjuggu undirleikinn. Þema Barnamenningarhátíðar í ár er samkennd og samfélag, og það endurspeglaðist vel í þessum glæsilega viðburði þar sem hundruð barna komu saman, studdu hvert annað og nutu þess að skapa tónlist, upplifun og skemmtun í sameiningu. 

Söngvavor sýndi með skýrum hætti þann kraft sem býr í samstarfi skólastiga, menningarstarfi og skapandi starfi barna í Hafnarfirði. Dagurinn verður án efa eftirminnilegur fyrir börnin, starfsfólkið, stolta foreldra og fjölskyldurnar sem fylgdust með.  

 

Suggestion portal