Götusópun og háþrýstiþvottur innan hverfa

News

Hafnarfirði er skipt upp í 17 hverfi og er eitt hverfi tekið fyrir á hverjum degi. Daginn fyrir sópun í hverfi eru sett upp skilti með upplýsingum um framkvæmdina og íbúar upplýstir eftir því sem kostur er. Auk þess eru smáskilaboð send út á alla þá íbúa sem eru með númer sín skráð á 1819.is. Götusópun innan hverfa hófst í miðbænum í dag.

Háþrýstiþvotti bætt við hefðbundna götusópun   

Vorsópun gatna, stétta og göngustíga í Hafnarfirði er nú komin á fullt skrið og í ár er þjónustan efld enn frekar. Auk hefðbundinnar sópunar verður nú einnig ráðist í háþrýstiþvott á götum innan hverfa gagngert til að bæta gæði umhverfis og upplifunar fyrir íbúa og gesti. Strax eftir páska var hafist handa við að hreinsa aðalleiðir bæjarins og lýkur þeirri framkvæmd á næstu dögum. Samhliða hófst stígahreinsun þar sem aðalstígar eru teknir fyrst og síðan aðrir göngu- og hjólastígar. Umferðareyjur og önnur valin svæði eru einnig háþrýstiþvegin.

Bænum skipt í hverfi

Hafnarfirði er skipt upp í 17 hverfi og er eitt hverfi tekið fyrir á hverjum degi. Daginn fyrir sópun í hverfi eru sett upp skilti með upplýsingum um framkvæmdina og íbúar upplýstir eftir því sem kostur er. Auk þess eru smáskilaboð send út á alla þá íbúa sem eru með númer sín skráð á 1819.is.  Götusópun innan hverfa hófst í miðbænum í dag.

Samvinna skilar bestum árangri

Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa og fyrirtæki til að taka virkan þátt í hreinsuninni. Mikilvægt er að götur séu auðar af bílum þann dag sem sópað er svo hægt sé að hreinsa kantsteina og svæði milli bílastæða með fullnægjandi hætti. Jafnframt er upplagt að nýta tækifærið og sópa eða taka til í nærumhverfi sínu. Með sameiginlegu átaki verður bærinn allur snyrtilegri og fallegri inn í vorið.

Fyrirspurnir og ábendingar

Hafnarfjarðarbær tekur ávallt vel á móti ábendingum frá íbúum um það sem betur má fara. Hægt er að senda inn ábendingar í The town's feedback portal, hafa samband við þjónustuver í síma 585-5500 eða senda tölvupóst á hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

Suggestion portal