Yfirfóru langtímahættumat Veðurstofunnar á fundi bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og sveitarstjórnarframbjóðendur fundaði í dag með framkvæmdastjóra almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins. Fundarefnið voru tvær skýrslur Veðurstofunnar um hraunavá á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu.
Nýtt langtímahættumat fyrir Reykjanesskaga
Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins, yfirfór nýjar skýrslur Veðurstofu Íslands á fundi með bæjarstjórn og frambjóðendum til sveitarstjórnarkosninga á fundi í Hafnarborg í dag. Skýrslurnar setja fram þá sviðsmynd að suðvesturhluti byggðar Hafnarfjarðar sé í töluverðri til mikil hættu á hraunflæði samkvæmt langtímahættumati Veðurstofunnar.
Bent er á að ekki eru merki um þessa sviðsmynd í náinni framtíð. Niðurstöður í skýrslunum styðja við það sem þegar var vitað og eru ekki að umbylta þekkingu á hvar hraunavá steðjar að byggð og innviðum á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt mati Veðurstofunnar eru vatnsbólin í Kaldárbotnum á efsta hættustigi litið til hraunvár á Reykjanesskaga. Veðurstofa Íslands vann langtímamatið fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og almannavarnarnefnd þess.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir skýrslur Veðurstofunnar sýna hvaða svæði og innviðir eru berskjaldaðir fyrir hrauni svo hægt sé að undirbúa mótvægisaðgerðir.
„Við höfum beðið eftir þessum niðurstöðum um nokkurt skeið og fögnum því að hafa nú fengið skýrslurnar í hendur. Á meðan beðið var eftir skýrslunum hafa sveitarfélögin jafnframt nýtt tímann til undirbúnings með því að halda æfingar fyrir stjórnkerfi hvers sveitarfélags með það að markmiði að efla viðbúnað og undirbúa möguleg viðbrögð. Næsta skref er að nýta þær til að efla öryggi íbúa og við erum tilbúin til þess.“
Valdimar segir vatnsbólið í Kaldárbotnum ekki í bráðri hættu heldur gefi sviðsmyndin tækifæri til að undirbúa aðgerðir komi til þess að sviðsmyndin raungerist á einhverjum tímapunkti.
„Þegar er hafin vinna hjá almannavarnanefnd og veitufyrirtækjum á svæðinu við að skoða hvaða lausnir eru í boði til að auka rekstrarhæfi veitnanna og vernda ómissandi innviði, meðal annars með undirbúningi mótvægisaðgerða, varaleiða og styrkingu lagna. Reynslan frá Grindavík og Svartsengi sýnir að raunhæfar mótvægisaðgerðir eru fyrir hendi,“ segir hann.
Valdimar segir skýrslurnar tvær dæmi um tímamótavinnu sem unnin hafi verið af Veðurstofu Íslands í þágu öryggis og samfélagsins alls. „Fyrir það ber að þakka. Nú er það okkar, í samstarfi við almannavarnir, Veðurstofu og aðra sem að málinu koma, að nýta þessa þekkingu af ábyrgð og festu samfélaginu til góðs. Þannig tryggjum við að upplýsingar verði grundvöllur að auknu öryggi en ekki ótta.“
- Sjá nýju síðuna, www.eldfjallava.is
- Sjáðu skýrsluna Hraunavá á Reykjanesskaga – Langtímahættumat
- Sjáðu skýrsluna Hraunavá á höfuðborgarsvæðinu – Langtímahættumat
- Sjáðu samantekt Veðurstofunnar here.