Skapandi börn geta málað í Hafnarborg í sumar

News

Sex myndlistarnámskeið verða í Hafnarborg í sumar fyrir skapandi ungmenni. Námskeiðin eru annars vegar fyrir 6-9 ára. Hins vegar 10-12 ára.

Sumar í Hafnarborg

„Sumarnámskeiðin í Hafnarborg eru liður í að varpa ljósi á hve margt er í boði fyrir unga fólkið okkar hér í Hafnarfirði,“ segir Unnur Mjöll S. Leifsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Hafnarborg í Hafnfirskri æsku, blaði Fjarðarfrétta, sem nú er komið út.

„Skapandi vinna er grunnur að svo mörgu. Þú ætlar þér kannski ekki endalega verða listamaður sem slíkur en langar að vinna í skapandi greinum. Þá nýtist þekkingin sem börnin sækja hér og í listkennslu annars staðar. Já, mannveran er skapandi vera og auðvelt er að heimfæra lærdóminn sem fæst á þessum sumarnámskeiðum á lífið sjálft þegar fram í sækir,“ segir hún.

Eins og þar segir verða sex námskeið haldin í Hafnarborg í sumar fyrir skapandi ungmenni. Myndlistarnámskeið 15.-19. júní og 10.-14. ágúst. Svo Myndlistar- og tónlistarnámskeið 22.-26. júlí. Krakkar á aldrinum 6-9 ára fyrir hádegi og 10-12 ára eftir hádegi. Tólf á hverju námskeið, sótt um í gegnum frístundavefinn Völu.

„Þetta er fyrir krakka sem hafa gaman að því að skapa með höndunum, pæla mikið. Við skoðum náttúruna, blómin, búum til pensla úr stráum. Það myndast tenging við náttúruna og innri heim barnanna sjálfra,“ segir hún.

„Þetta verður stórkostlega fínt og á góðu verði.“

 

 

 

 

 

 

 

 

Suggestion portal