Hraunvallaskóli 10 years
Nú í júní er stór stund í sögu skólans. Þá útskrifum við í fyrsta sinn nemendur sem hafa lokið tíu ára skólagöngu sinni við Hraunvallaskóla. Í tilefni þessara skemmtilegu tímamóta bjóðum við þér/ykkur að fagna með okkur þriðjudaginn 2. júni
Nú í júní er stór stund í sögu skólans. Þá útskrifum við í fyrsta sinn nemendur sem hafa lokið tíu ára skólagöngu sinni við Hraunvallaskóla.
Í tilefni þessara skemmtilegu tímamóta bjóðum við þér/ykkur að fagna með okkur þriðjudaginn 2. júni. Við bjóðum upp á fjölbreytta dagskrá á sal þar sem nemendur gleðja og skemmta okkur eins og þeim er einum lagið með atriðum sem þau hafa sýnt á samverum í vetur.
Sýnum ykkur fjölbreytta vinnu og listaverk sem nemendur hafa unnið sem hópur og gefið skólanum. Myndasýning verður í fyrirlestrarsalnum þar sem hægt verður að skoða sögu skólans og nemendur í leik og starfi á liðnum árum.
Og að sjálfsögðu verður boðið upp á afmælisköku eins og í öllum góðum afmælum.
Öll kennslusvæði eru opin og til sýnis frá kl. 8:20 – 14:00.
Dagskrá á sal:
Kl. 8:30
10:00
1:00 p.m.
Við hlökkum til að sjá ykkur og njóta tímamótanna með ykkur.
Nemendur og starfsfólk Hraunvallaskóla
www.hraunvallaskoli.is