Actavis til umræðu í Bæjarráði í morgun
Bæjarráð skorar á stjórnendur Actavis að leita allra leiða
til að viðhalda öflugri starfsemi í Hafnarfirði og að allir möguleikar verði
skoðaðir á því að ný verkefni komi í stað þeirra sem ákveðið hefur verið að
flytja úr landi.
Bæjarráð fundaði í morgun með fulltrúum frá Actavis þar sem farið var yfir þær breytingar sem framundan eru hjá fyrirtækinu.
Starfsemi Actavis er snar þáttur í fjölbreyttu atvinnu lífi Hafnarfjarðar og fyrirhugaður samdráttur rekstrarins því áfall.
Bæjarráð skorar á stjórnendur Actavis að leita allra leiða til að viðhalda öflugri starfsemi í Hafnarfirði og að allir möguleikar verði skoðaðir á því að ný verkefni komi í stað þeirra sem ákveðið hefur verið að flytja úr landi.
Jafnframt var bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með atvinnuveganefnd Alþingis vegna framtíðarþróunar atvinnumála í Hafnarfirði.