Thirteenth Birthday Joy 2016

News

Christmas will be seen out with dancing and singing at a splendid Threttánda celebration at Ásvellir on Wednesday, 6th January. The celebration starts promptly at 6 p.m.

 Gleðilegt nýja árið!

Jólin verða kvödd með dansi  og söng á glæsilegri

Þrettándagleði á Ásvöllum miðvikudaginn 6. janúar. Gleðin hefst stundvíslega kl. 18.

Það er óhætt að segja að Haukar í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ ætli að kveðja jólin með pompi og prakt með söng og dansi á Ásvöllunum. Hin eina sanna Helga Möller kemur til með að stjórna söng og dansi af sviði af stakri snilld auk þess sem síðustu jólasveinarnir, Grýla, Leppalúði, álfar og púka koma til með að skemmta gestum og gangandi.

Kakó og vöfflur verða í boði á staðnum á vægu verði auk þess sem stjörnuljós verða seld í afgreiðslu.

 Hátíðinni  lýkur um kl. 19 með glæsilegri flugeldasýningu  Björgunarsveitar Hafnarfjarðar.


 Sannkölluð fjölskylduskemmtun!

Suggestion portal