Safnanótt í Hafnarfirði
Söfn í Hafnarfirði taka virkan þátt í Safnanótt föstudaginn 5. febrúar með fjölbreyttri dagskrá. Í Hafnarfirði verða rúmlega tuttugu viðburðir í boði. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð
Söfn í Hafnarfirði taka virkan þátt í Safnanótt föstudaginn 5. febrúar með fjölbreyttri dagskrá. Í Hafnarfirði verða rúmlega tuttugu viðburðir í boði. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Byggðasafn Hafnarfjarðar og Hafnarborg taka þátt í hátíðinni með virkum hætti og fjölbreyttri dagskrá. Söfnin þrjú verða opin frá kl. 19 til miðnættis föstudaginn 5. febrúar og eru eftirtaldir viðburðir öllum opnir og ókeypis. Tæplega fjörtíu söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá þetta kvöld og geta íbúar og gestir á öllum aldri notið yfir 100 viðburða af öllum stærðum og gerðum á söfnum á stór-höfuðborgarsvæðinu.
Safnanæturleikur
Á Safnanótt fer fram Safnanæturleikur. Taktu þátt í leiknum með því að svara laufléttum spurningum og safna stimplum frá mismunandi söfnum sem þú heimsækir. Þátttökublað leiksins er hægt að nálgast á öllum söfnum sem taka þátt í Safnanótt. Here er líka hægt að nálgast þátttökublað til útprentunar.
Í Hafnarfirði verða rúmlega TUTTUGU viðburðir í boði.
Allir velkomnir!
Bókasafn Hafnarfjarðar – Strandgata 1
19:00 – 23:59 Ratleikur um bókasafn
19:00 – 23:59 Ókeypis bækur
19:00 – 23:59 Bókakaffi
19:00 – 23:59 Stjörnuhrellir
19:00 – 23:59 Dýrahjálp Íslands
19:00 – 21:00 Geimskutlugerð
19:00 – 23:59 Stjörnustríðsbókamerki
19:30 – 21:00 Bókasafnsbíó – Ída
19:30 – 20:00 Vísinda-Villi
20:00 – 21:00 Stjörnuhekl – örnámskeið
20:30 – 20:45 Upplestur – Jónína Leósdóttir
21:00 – 22:00 Íslenska litabókin – kynning
21:30 – 23:30 Bókasafnsbíó – Ziggy Stardust and The Spiders from Mars
22:00 – 23:59 Star Wars Pub Quiz
Port city
19:00 – 20:00 Listasmiðja – prent og bókagerð
19:00 – 22:00 Á bak við tjöldin – Heimsókn í geymslur safnsins
20:00 – 20:30 Vasaljósaleiðangur fyrir börn
20:00 – 23:30 Teboð
20:30 – 21:15 Hláturjóga
21:00 – 21:40 Listamannsspjall – Ragnhildur Jóhanns
22:15 – 23:15 Skuggamyndir frá Bysans – Lifandi tónlist
Hafnarfjörður Museum of Local History
20:00 – 22:00 Söngvaskáld í safninu
20:00 – 22:00 Til fundar við formæður
Ítarlegri upplýsingar er að finna á heimasíðu Vetrarhátíðar eða Here og á Facebook síðum safna:
Hafnarfjörður Library
Port city
Hafnarfjörður Museum of Local History
Þið megið endilega taka virkan þátt í að myndsetja viðburði og hátíð með okkur með því að tagga tíst á twitter og myndir á Instagram með:
#safnanótt
#Hafnarborg
#BokasafnHafnarfjardar
#ByggdasafnHafnarfjardar