Ný jafnréttisáætlun
Ný jafnréttisáætlun fyrir Hafnarfjarðarbæ liggur nú fyrir. Áætlunin tekur til sex þátta sem hver fyrir sig er vel markaður með markmiðum, aðgerðum, ábyrgð og tímaramma.
Í upphafi árs
var óskað eftir innleggi frá íbúum og öðrum áhugasömum að efni í
jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun Hafnarfjarðarbæjar. Nú liggur ný áætlun fyrir og er vinna við jafnréttisstefnu einnig vel á veg komin. Markmið með
jafnréttisáætlun Hafnarfjarðarbæjar er að stuðla að jafnrétti kynjanna og að
kynja- og jafnréttissjónarmið verði samþætt allri starfsemi bæjarins.
Aðgerðaáætlunin byggir á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og
jafnréttisstefnu Hafnarfjarðarbæjar sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 1.
febrúar 2012 og Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum
og héruðum sem undirritaður var árið 2008.
Jafnréttisáætlun tekur meðal annars á eftirfarandi þáttum:
- Launajafnrétti
- Laus störf, starfsþjálfun og
endurmenntun - Sveigjanleiki til að samræma
fjölskyldulíf og atvinnulíf - Kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni,
kynbundið ofbeldi og einelti - Unnið gegn mismunun á vinnustöðum og
möguleikar fólks með mismunandi starfsgetu auknir - Áhersla á samþættingu kynjasjónarmiða í öllu
starfi bæjarins
Hver þáttur er
vel markaður með markmiðum, aðgerðum, ábyrgð og tímaramma.
Jafnréttisáætlun í heild
sinni má finna hér