Ásvallalaug verður lokuð í dag frá kl. 16:30 og allan daginn á morgun vegna sundmóts. Sunnudaginn 1. maí verða allar sundlaugar lokaðar.
Ásvallalaug verður lokuð föstudaginn 29. apríl frá kl. 16:30 og allan laugardaginn 30. apríl vegna sundmóts. Suðurbæjarlaug verður opin fyrir almenning frá kl. 8 – 18 á morgun laugardag en báðar laugar; Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug verða lokaðar sunnudaginn 1. maí á alþjóðlegum frídegi verkafólks og baráttudegi verkalýðshreyfingarinnar.
