The Handball Town in the Packhouse – brand new exhibition
Hátt í 80 voru við opnun sýningarinnar Handboltabæinn Hafnarfjörð í Pakkhúsinu á Byggðasafninu okkar á föstudag. Opið er alla daga frá 11-17. Frítt inn.
The handball town of Hafnarfjörður
Hátt í 80 mættu á opnun þemasýningarinnar Handboltabærinn Hafnarfjörður í Pakkhúsinu á föstudag. „Við erum að rekja sögu handboltans í bænum frá fyrsta leik en hann fór fram árið 1925,“ segir Björn Pétursson bæjarminjavörður. „Allt frá þessum fyrsta leik hefur bærinn verið vagga handboltans hér á landi.“
Sýningin hefur þegar vakið mikla athygli og stríður straumur í Pakkhúsið um helgina. Jón Halldórsson, formaður Handknattleikssambands Íslands, opnaði sýninguna með stuttu ávarpi. Björn lýsir áfram.
„Við sýnum verðlaunapeninga frá Íslandsmótinu í ár. Já, og höfum fengið ýmsa muni enda segjum við frá 101 ári af handbolta í Hafnarfirði,“ segir hann.
Öll þekkjum við bæjarbraginn og ríginn sem getur myndast milli félaganna FH og Hauka. En hvort félagið færi meiri athygli á sýningunni?
„Af stakri snilld er mikillar nákvæmni er jafnræðis gætt, bæði á milli FH og Hauka og karla og kvenna. Sekúndur mældar og munir taldir,“ segir Björn og hlær. Sjá má myndbrot og leiki á sýningunni.
„Þetta er annars vegar brot úr gömlum leikjum og hins vegar gamalt viðtal við Geir Hallsteinsson handboltakempu, sem og klippur frá RÚV. En við bættum einnig við það viðureign FH og Hauka frá því á dögunum og sýnum hvernig bærinn fórá hliðina þegar þessi lið mætast í útslitakeppninni,“ segir hann.
Hugmyndin að sýningunni kemur frá starfsfólki Byggðasafnsins. „Við sitjum gjarnan hugarflugsfundi og ákváðum hvaða sýningar verða settar upp sem þemasýningar ár hvert.
Hver hannar svo sýninguna? „Starfsfólk Byggðasafnsins hannar sýninguna og setur hana upp. Munirnir eru ýmist úr safneigninni, frá félögunum eða einstaklingum í bænum,“ segir Björn.
Sumaropnun hefur nú tekið við á Byggðasafninu og opið alla daga frá 11-17. „Ég hvet fólk til að koma og kíkja, opið alla daga og frítt inn.“
Velkomin öll á þessa frábæru hafnfirsku sýningu.