Facelift roundabout
Það þarf ekki alltaf stórar framkvæmdir til að breyta ásýnd bæjarins. Stundum dugar að gefa nærumhverfinu smá aukna athygli. Það eru oft litlu breytingarnar sem skipta mestu. Umferðareyjurnar sem þúsundir aka fram hjá á hverjum degi eru meðal þeirra svæða sem hafa fengið aukna umhyggju í sumar – og það sést.
Þegar nærumhverfið fær aukna athygli
Það þarf ekki alltaf stórar framkvæmdir til að breyta ásýnd bæjarins. Stundum dugar að gefa nærumhverfinu smá aukna athygli. Það eru oft litlu breytingarnar sem skipta mestu. Umferðareyjurnar sem þúsundir aka fram hjá á hverjum degi eru meðal þeirra svæða sem hafa fengið aukna umhyggju í sumar – og það sést.
Umferðareyjur sem augnayndi
Í vor og sumar hefur starfsfólk Þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar unnið markvisst að því að fegra valin svæði víðs vegar um bæinn. Með gróðri, snyrtingu og reglulegu viðhaldi hafa meðal annars umferðareyjurnar við Reykjavíkurveg og meðfram Fjarðargötu að Fjörukránni fengið aukna umhyggju – og eru í dag sannkallað augnayndi fyrir alla sem eiga þar leið um. Vasarnir í eyjunum, plöntureitirnir hafa staðið tómir um nokkurt skeið og eru nú að fá nýtt líf með Súlublæösp – miðlungsstórri trjátegund með granna súlulaga krónu sem mun gefa fallega götumynd.
Ræktun nærumhverfisins
Á sama tíma hafa fjölmargir íbúar sent okkur ábendingar um það sem betur má fara. Fyrir það viljum við þakka. Allar ábendingar eru skoðaðar, metnar og þeim forgangsraðað. Margar þeirra verða hluti af verkefnum sem ráðist verður í á komandi misserum. Við höldum áfram að leggja rækt við sameiginlega nærumhverfið okkar – skref fyrir skref.
Senda inn ábendingu um svæði sem þarfnast athygli: https://hfj.is/abending
Fallegur bær verður til þegar við vinnum saman.


