Total solar eclipse 12 August 2026

News

Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi og Hafnfirðingar verða í einstakri stöðu til að upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð í heimabæ sínum. Almyrkvinn verður sýnilegur í Hafnarfirði í um eina mínútu og ferlið í heild stendur yfir í um tvær klukkustundir frá síðdegi fram undir kvöld.

Njótum einstaks augnabliks í Hafnarfirði

Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi og Hafnfirðingar verða í einstakri stöðu til að upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð í heimabæ sínum. Almyrkvinn verður sýnilegur í Hafnarfirði í um eina mínútu, allt að 68 sekúndur á Völlunum, og ferlið í heild stendur yfir í um tvær klukkustundir frá síðdegi fram undir kvöld. Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa til að njóta almyrkvans heima, í göngufæri eða á hentugum stað í nærumhverfinu. Með því má draga úr óþarfa umferð, létta álagi af innviðum og viðbragðsaðilum og stuðla að öruggri og ánægjulegri upplifun fyrir alla.

Hamarinn og Ástjörn við Ásvelli

Hamarinn og Ástjörn við Ásvelli eru svæði sem Hafnarfjarðarbær bendir sérstaklega á sem góða staði til að safnast saman og fylgjast með almyrkvanum. Íbúar eru þó jafnframt hvattir til að velja þann stað sem best hentar hverjum og einum, nálægt heimili eða gistingu, og nýta gönguleiðir, hjól eða almenningssamgöngur þegar því verður við komið. Á Víðistaðatúni verður söngkonan Björk með hátíðina Echolalia ásamt Smekkleysu og þar er gert ráð fyrir fjölda gesta. Íbúar og gestir eru því hvattir til að skipuleggja sig tímanlega, gera ráð fyrir aukinni umferð og sýna þolinmæði þar sem biðraðir eða tímabundið álag kann að myndast.

Hvenær sést almyrkvinn í Hafnarfirði?

Deildarmyrkvi hefst í Hafnarfirði um kl. 16:47 og almyrkvi hefst um kl. 17:48. Hámark verður skömmu síðar og almyrkva lýkur um kl. 17:49. Deildarmyrkva lýkur síðan um kl. 18:47. Tímalengd almyrkvans er lítillega mismunandi eftir staðsetningu í bænum, eða um 65 sekúndur í Norðurbæ og Holti, 66 sekúndur í miðbænum og allt að 68 sekúndur á Völlunum. Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 1433 sem almyrkvi sést á höfuðborgarsvæðinu. Næsti almyrkvi sem verður sýnilegur hér verður ekki fyrr en 26. maí 2245.

Sólmyrkvagleraugu fyrir börn

Hafnarfjarðarbær gefur öllum börnum í Hafnarfirði, 17 ára og yngri, sólmyrkvagleraugu. Gleraugun má nálgast á Byggðasafni Hafnarfjarðar, í Hafnarborg og í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 8–10.
Nauðsynlegt er að nota örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu þegar fylgst er með sólinni í deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka gleraugun af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.

Heima er best – og nærumhverfið okkar

Flestir íbúar á vestanverðu landinu geta notið almyrkvans frá heimili sínu eða í göngufæri. Í Hafnarfirði er því ekki nauðsynlegt að ferðast langar leiðir til að upplifa viðburðinn. Íbúar eru hvattir til að fara ekki í stutt erindi á bíl að nauðsynjalausu meðan á viðburðinum stendur og velja frekar öruggan og hentugan stað í nærumhverfinu. Með sameiginlegu átaki getum við dregið úr umferð, verndað viðkvæm svæði og auðveldað viðbragðsaðilum að sinna sínum verkefnum. Gestir sem koma til bæjarins eru einnig hvattir til að velja áhorfsstað nálægt gistingu, mæta tímanlega og dvelja lengur eftir að myrkva lýkur.

Verum vel undirbúin og förum varlega

  • Kynnið ykkur tímasetningar, ferðaleiðir, veðurspá og opinberar upplýsingar áður en lagt er af stað.
  • Gerið ráð fyrir auknum ferðatíma og mögulegu álagi á götur, bílastæði og þjónustu.
  • Gangið, hjólið eða nýtið almenningssamgöngur þegar því verður við komið.
  • Takið með vatn, mat, nauðsynleg lyf og viðeigandi fatnað ef dvalið er utandyra.
  • Gætið þess að hafa nægt eldsneyti eða hleðslu á ökutæki ef ferðast er lengra.
  • Virðið leiðbeiningar lögreglu, viðbragðsaðila og starfsfólks á svæðum.
  • Hafið augun á veginum, ekki símanum, og sýnið þolinmæði í umferðinni.

Veður og upplifun

Ekki er nauðsynlegt að himinninn sé alveg heiðskír til að upplifa almyrkvann. Háskýjaslæða þarf ekki að trufla upplifunina, en þungbúið veður og rigning geta haft áhrif. Jafnvel þótt skyggni verði ekki fullkomið verður birtubreytingin sjálf einstök þegar myrkur skellur á í stutta stund.

Further information

Íbúar og gestir eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum frá Hafnarfjarðarbæ, stjórnvöldum, lögreglu og viðbragðsaðilum þegar nær dregur.
Further information can be found at upplýsingagátt stjórnvalda um almyrkvann, á gagnvirku korti um hvar og hvenær myrkvinn sést og á fræðslugátt Sævars Helga Bragasonar um almyrkva á sólu árið 2026.

Forsíðumynd: Sævar Helgi Bragason 

Suggestion portal