Creative Summer Jobs – Egill / Live Video Works

News

Egill Ari Hreiðarsson, 22 ára myndlistarmaður úr Hafnarfirði, vinnur á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að „interactive“ myndlist, þar sem áhorfandinn verður virkur þátttakandi í verkinu. Markmiðið er að færa vídeómiðilinn út fyrir hefðbundinn skjá og breyta honum í lifandi innsetningu og gjörning.

„Ég heiti Egill Ari Hreiðarsson og er 22 ára myndlistarmaður úr Hafnarfirði. Árið 2022 útskrifaðist ég af tölvubraut frá Tækniskólanum en fljótlega fór áhugi minn að beinast sífellt meira að myndlist. Ég hóf því nám í fornámi við Myndlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan árið 2025.“

Sameinar tækni og myndlist

„Síðasta haust hóf ég síðan nám í myndlist við Listaháskóla Íslands, þar sem ég held áfram að þróa vinnuna mína og kanna nýjar leiðir til sköpunar. Leið mín inn í myndlist hefur verið nokkuð óhefðbundin. Ég nýti tæknilegan bakgrunn minn í verkunum og sameina þannig tækni og myndlist á minn eigin hátt. Það má segja að þar hafi ég fundið minn farveg.“

„Ég vinn helst með tímatengda miðla, svo sem vídeó, gjörninga, hljóðverk og innsetningar. Sérstaklega hef ég mikinn áhuga á svokölluðu „video feedback“, þar sem myndavél og skjár skapa síbreytilegt sjónrænt flæði. Það sem heillar mig við þessa tækni er að áhorfandinn fær að vera hluti af verkinu. Verkið verður ekki til nema einhver taki þátt og staldri við. Í verkum mínum sæki ég líka innblástur í hversdagsleikann, þessu litlu atriði sem við tökum oft ekki eftir. Tæknin umlykur okkur á hverjum degi, til dæmis eftirlitsmyndavélar í matvöruverslun með skjá sem endurvarpar eigin mynd. Þessi hversdagslegu augnablik verða að efniviði í listinni.“

Breytir vídeómiðlinum í lifandi innsetningu og gjörning

„Verkefnið mitt í Skapandi sumarstörfum heitir Lifandi Vídeóverk. Verkefnið byggir á áhuga mínum á „interactive“ myndlist, þar sem áhorfandinn verður virkur þátttakandi í verkinu. Markmiðið er að færa vídeómiðilinn út fyrir hefðbundinn skjá og breyta honum í lifandi innsetningu og gjörning. Verkið er því stöðugt að breytast eftir því hver upplifir það og hvernig fólk hreyfir sig um rýmið. Verkið er því líka skoðun á hvernig fólk nálgast myndlistarverk og hvernig upplifunin breytist þegar þau sjá sjálfan sig í verkinu.“

„Ég vinn með einfalda litasamsetningu þar sem grunnlitirnir fá að njóta sín. Með lit, hreyfingu og rýminu sjálfu rannsaka ég hvernig einföld sjónræn atriði geta skapað sterka upplifun. Með verkinu langar mig einnig að kynna þessa hlið myndlistar fyrir fleirum og sýna hvernig tækni og list geta runnið saman á aðgengilegan og lifandi hátt.“

Nýtir beint myndtreymi í list

„Þann 17. júní sýndi ég fyrstu útgáfu af innsetningunni og gaf gestum kost á að upplifa verkið í sinni fyrstu mynd. Reynslan af þeirri sýningu hefur nýst vel við áframhaldandi þróun verkefnisins yfir sumarið. Þar var verkið þrískipt, myndin var sýnd á þrem flötum og áhorfendur gátu ýtt á takka til að breyta myndinni sem þau voru að stíga inn í. Þessar myndir voru blöndur af vefmyndavélum og teknu efni. Meðal annars var hægt að sjá íslenska fánann fjúka í vindinum, myndstreymi af því sem var í gangi fyrir utan bygginguna og svo annað myndstreymi frá gatnamótum í hafnarfirði.“

Tækifæri til að stíga inn í verkið

„Á lokahófi Skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði verður Lifandi Vídeóverk sett upp með fullbúnni innsetningu. Þar fá gestir tækifæri til að stíga inn í verkið og verða hluti af því þar sem upplifunin mótast af nærveru hvers og eins.“

Við hvetjum ykkur eindregið til að fylgjast með framvindu verkefnisins og afrakstri þessa fjölhæfa listamanns Here á Instagram sem og mæta á lokahófið þann 6.ágúst næst komandi. Öll eru velkomin.

About Creative Summer Jobs 2026

In the summer of 2021, the Municipality of Hafnarfjörður, in collaboration with the town's youth centre, Hamarinn, decided to revive the “Creative Summer Jobs” project, which had been run in the summer of 2017. Individuals and groups aged 18-25 were invited to submit ideas for creative projects in Hafnarfjörður. Selected groups were given the opportunity to work on various creative projects in different areas of the arts, which would also liven up the town's social life and delight tourists and residents in one way or another. The staff of the Creative Summer Jobs, run as part of the Hafnarfjörður Work School, are tasked with bringing the town to life, making it more fun, beautiful and diverse with artistic and creative events. The projects are varied and appeal to different age groups and interests.

This year, there are nine diverse projects operating as part of the Creative Summer Jobs scheme, and they will be presented weekly throughout the summer.

Suggestion portal