Snyrtileikinn 2025 – viðurkenning fyrir framlag til fegrunar
Hafnarfjarðarbær leitar til íbúa og allra áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir metnaðarfullt framlag til umhverfismála og fegrunar bæjarins og geta viðurkenningar náð bæði til einstaklinga sem hreinsa og fegra umhverfi sitt af hugsjón sem og til eigenda lóða og ákveðinna svæða í Hafnarfirði. Val til viðurkenninga byggir meðal annars á innsendum tillögum.
Metnaðarfullt framlag til umhverfismála og fegrunar nærumhverfisins
Hafnarfjarðarbær leitar til íbúa og allra áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir metnaðarfullt framlag til umhverfismála og fegrunar bæjarins og geta viðurkenningar náð bæði til einstaklinga sem hreinsa og fegra umhverfi sitt af hugsjón sem og til eigenda lóða og ákveðinna svæða í Hafnarfirði. Val til viðurkenninga byggir meðal annars á innsendum tillögum og eru öll áhugasöm hvött til að senda inn tilnefningar í gegnum vef bæjarins fyrir 1. september nk.
Opið fyrir víðtækari tilnefningar
Umhverfis- og framkvæmdaráð hefur um árabil veitt viðurkenningar fyrir fallega garða, falleg og snyrtileg hús, fallegar nýbyggingar eða götumyndir sem og atvinnuhúsalóðir sem þykja til fyrirmyndar. Í ár, líkt og í fyrra, er opið fyrir víðtækari tilnefningar því fegurðin leynist sannarlega víða; bæði í umhverfinu og ekki síst í fólkinu sjálfu og framtaki þess til umhverfismála. Gaman væri að fá inn fjölbreyttar tillögur sem taka á framlagi fólks og fyrirtækja og er til þess fallið að vera öðrum til hvatningar. Margt smátt gerir eitt stórt.
Frestur til tilnefninga er til og með 1. september
Val til viðurkenninga byggir meðal annars á innsendum tillögum og eru íbúar, gestir, starfsfólk fyrirtækja og stofnana í Hafnarfirði og aðrir áhugasamir hvattir til að benda á þau og það sem best þykir á sviði umhverfismála. Tilnefningum má skila í gegnum skráningarformið hér fyrir neðan en einnig er hægt að senda tilnefningar á netfangið: ingibjorgs@hafnarfjordur.is. Viðurkenningar verða veittar við hátíðlega athöfn í Hellisgerði í september.
Tilnefningar fyrir snyrtileika 2025Snyrtileikinn