Sunbeams and coffee tears with the mayor at Thorsplan

News

„Það er alveg ljóst að það er þörf á þessum opnu fundum,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri sem bauð upp á spjall á Thorsplani í gær. Málefnin voru fjölþætt og ábendingarnar þarfar.

Kaffibolli og spjall á Thorsplani

„Það er alveg ljóst að það er þörf á þessum opnu fundum. Fullt hefur verið í þá alla. Ég mun halda þessu áfram enda eitt mikilvægasta verkefni bæjarstjóra að vera í góðu sambandi við íbúa,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri sem hélt opna fundinn sinn á Thorsplani í gær.

„Umræðuefnin eru fjölbreytt og ég legg mikla áherslu á það að þær ábendingar sem koma fara í farveg innan kerfisins hjá okkur,“ segir hann.

Málefnin voru fjölþætt í gær og ábendingarnar þarfar. Veðrið var yndislegt og gott spjall myndaðist yfir kaffibolla ef bið myndaðist eftir bæjarstjóra.

Valdimar er einnig með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í gegnum símanúmerið: 585-5506. Þessir á Thorsplani eru því með aðeins öðru sniði. Aðeins þarf að mæta.

Öll áhugasöm eru hvött til að nýta sér þennan þriðjudagsmöguleika og eiga gott og innihaldsríkt spjall við bæjarstjórann um þjónustu sveitarfélagsins og málefni bæjar og íbúa.

Næsti opni fundur með bæjarstjóra verður 26. september milli kl. 12-14.

Suggestion portal