Thousands expected at the Christmas Village in Hafnarfjörður – See who will be there!
Jólaþorpið í hjarta Hafnarfjarðar opnar í dag kl. 17. 200.000 jólaljós og hátt í 50 verslanir verða á svæðinu þær sex helgar sem Jólaþorpið verður opið. Tendrað verður á Cuxhaven-vinabæjarjólatrénu okkar um kl. 18.40
Jólaljós, bros og skautasvell í Jólaþorpinu
200.000 jólaljós og hátt í 50 verslanir verða á svæðinu þær sex helgar sem Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opið. Jólaþorpið er 22 ára. Það opnar í dag 14. nóvember kl. 17.
„Það er vart hægt að lýsa því hvað Jólaþorpið hefur gert fyrir Hafnarfjörð; meiri gleði, sterkari hefðir. Hingað streyma fjölskyldur ár eftir ár, sækja steikina, gjafir og gómsæti, en þó fyrst og fremst í félagsskap hvers annars,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri.
Valdimar ásamt Clarissu Duvigneau, sendiherra Þýskalands, og Wolf Dick, ræðismanni Íslands í Cuxhaven, tendra á vinabæjartrénu um klukkan 18.40. Það verður nú gert í 37. sinn. Stundin verður skreytt með gullfallegum tónum fyrir og eftir.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar blæs jólatóna kl. 18, karlakórinn Þrestir syngur korteri seinna og Árni Beinteinn og Sylvía syngja bestu jólalög barnanna eftir að tréð verður ljómað ljósum.
Tuttugu jólahús prýða Jólaþorpið í Hafnarfirði og fjölmargar verslanir á Strandgötu verða með opið á sama tíma og Jólaþorpið, þar á meðal Sigga & Timo, Kaki, Burkni, Litla Hönnunar Búðin, Litla Gallerý, Pipar og Salt og Petria. Hjartasvellið, vistvænt skautasvell, er komið á sinn stað til móts við Bæjarbíó. Bærinn breytir algjörlega um ham.
„Já, Hafnarfjörður breytir um ham. Við jólum bæinn upp og njótum alla aðventuna,“ segir Valdimar.
Fyrsta helgin verður þétt og frábært að staldra við í glerhúsunum á Thorsplani, upplifunarhúsunum:
- Á föstudag: boðið uppá malt & appelsín frá Ölgerðinni
- Laugardag: boðið uppá popp og lukkuhjól frá Stjörnu (Iðnmark)
- Sunnudag: Pláneta skynjunarleikur
En hvað er svo að finna í jólahúsunum:
- Krakkakrútt.is býður föndur, leikföng og skemmtilegar gjafir fyrir alla aldurshópa.
- Korterí & Lasergaurinn sýna persónulegar jólagjafir, kort og handgerðar vörur.
- is býður upp á handverk frá skapandi Íslendingum.
- Svarfdal Design fangar víkingaandann í hlekkjasmíði og macramé
- Sylwia Olszewska and Marzena Harðarson sýna falleg handverk úr tré og mosa.
- is and Blueberry koma með vandaðar gjafir, húðvörur og hátíðarskraut sem gleður bæði auga og sál.
- Sætindaunnendur fá sitt þegar ÚTÚRKÚ kynnir handgert súkkulaði með íslenskum blæ.
- Kandís brjóstsykur býður sælgæti úr íslenskum jurtum og náttúrulegum litum.
- Icelandic loyalty, celebrating its 20th anniversary, showcases products from Icelandic berries, herbs and seaweed.
- Háafell geitfjársetur kemur með náttúrulegar afurðir úr sveitinni.
That's not all, as a wide variety of food will be on offer:
- Bloody hell býður bragðmiklar sultur og nýjungar úr íslensku hráefni.
- Food company verður með villibráð og sósur.
- Bæjarbakarí með bakstur og jólagómsæti.
- The Lángos van með ungverska rétti.
- Turf House with chips in a new and exciting version.
- In the middle house stands Brick vaktina en á boðstólnum verður Ali jólapylsa, Brikk jólapungar og Góu heitt súkkulaði svo eitthvað sé nefnt.
So all the sweets in the Christmas village.
- Churros Wagon býður stökkar og heitar churros.
- Önnu Konditori gleður með dönskum eplaskífum, smákökum og lagtertum.
Já, Jólaþorpið í Hafnarfirði býður þér í töfrandi stemningu. Þar finnur þú handverk, kræsingar og gjafahugmyndir fyrir alla! Hátíðleg stemning, ilmandi kræsingar og skapandi handverk fylla hjarta Hafnarfjarðar . Komdu og taktu þátt í gleðinni með okkur í Jólaþorpinu.