Two containers for the fireworks slide
Hafnarfjarðarbær vekur athygli á því að flugeldarusl á ekki heima í sorptunnum heimila. En við erum heppin, því sérstakir gámar verða settir upp til að taka við útsprunginni gleðinni.
Útsprungnir og ósprungnir flugeldar fara í Sorpu
Eftir áramótin er flugeldarusl oft áberandi í bænum. Brýnt er að koma þessu rusli á endurvinnslustöðvar, því það má ekki fara í tunnurnar. Sama gildir með ósprungna flugelda, þeir eiga að fara í spilliefnagáminn á Sorpu. Upplýsingar um flokkun efna frá jólahátíðinni má finna á vef Sorpu.
Flokkum okkur inn í umhverfisvænt ár
Tveir gámar fyrir flugeldarusl verða settir upp hér í Hafnarfirði þann 30. desember. Annar við grenndarstöðina við Tjarnarvelli 15. Hinn í miðbænum, við Fjörð. Þeir munu standa þar til 9. janúar. Endurvinnslustöðvar SORPU opna svo 2. janúar. Einnig er hægt að sjá nánari upplýsingar here.
Já, og jólatrén! Íþróttafélög, Haukar og ÍH hafa keyrt um bæinn og sótt tré gegn gjaldi í fjáröflunarskyni.
Gleðilegt hreint ár!
