Saman í raunheimum um jólin

News

Jólin er samverustund, segir Kristín Ólöf Grétarsdóttir sem situr í foreldraráði Hafnarfjarðarbæjar og hvetur foreldra til að verja tímanum með börnunum í raunheimum.

Fjölskyldan verji tímanum saman

„Það er mikilvægt að muna að hægja á, slaka á og að jólin séu samverustund. Við þurfum að passa að láta þennan tíma ekki snúast upp í andhverfu sína,“ segir Kristín Ólöf Grétarsdóttir sem situr í foreldraráði Hafnarfjarðarbæjar.

Ráðið fékk í vor viðurkenningar fyrir átak sitt Horfumst í augu. Þar eru börn, ungmenni og fullorðin hvött til að vera meira til staðar í raunheimum. „Eins og Gói leikari segir í byrjun myndbandsins Horfumst í augu sem foreldraráðið gerði: „Leggjum frá okkur símann og gerum eitthvað skemmtilegt saman.“ Ég ætla að fara eftir því,“ segir Kristín Ólöf hress og hefur lagt línurnar fyrir jólamánuðinn.

„Við fjölskyldan spilum mikið saman um jólin. Svo heiðrum við hefðirnar. Amma og afi voru með jólaföndur. Þau skáru út trékubba og við gerðum jólakransa og máluðum jólasveina. Hún var með brauðbollur og heitt súkkulaði. Svo var farið með jólasveinavísur,“ segir Kristín.

„Ég hef tekið við þessu kefli og held í hefðirnar. Og já, það er heitt súkkulaði, ekki kakó,“ segir Kristín og hlær. Amma hennar hafi lagt upp úr því. „Þessar stundir eru svo mikils virði.“

Kristín og maðurinn hennar Arnar Freyr Theodórsson eiga tvo stráka. „Við röltum árlega fjölskyldan í Jólaþorpið og Hellisgerði. Það er hluti af því að hringja jólin inn.“ Hún segir að strákarnir fá svo möndlugrautinn sinn á aðfangadag.Kristín Ólöf og Arnar Freyr með sonum sínum Nökkva Frey og Breka Steini. Með þeim er hundurinn Zorro.„Já, það er órjúfanleg hefð. Nágrannafjölskylda kemur yfir og við gefum möndlugjöf. Við höfum gert þetta árum saman,“ segir hún.
„Svo höfum við haft þá föstu venju að sjá Jóla Hólm í Bæjarbíói. Markmiðið er að vera saman því það er svo mikilvægt að vera meira til staðar í raunheimum.“

Hafnarfjörður's Christmas Magazine 2025 – online edition:

 

 

Suggestion portal