Amendment to the detailed plan for Hafnarfjörður Town Centre – Lækjargata 2 and Suðurgata 7
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 09.02.2018 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðanna við Lækjargötu 2 og Suðurgötu 7 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulaginu Hafnarfjörður Miðbær.
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 09.02.2018 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðanna við Lækjargötu 2 og Suðurgötu 7 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulaginu Hafnarfjörður Miðbær.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að á lóðinni Lækjargata 2, þar sem “Dvergurinn” stóð áður, verði heimilt að reisa 5 hús ásamt sameiginlegri bílageymslu í kjallara. Lóðarmörkum á götuhliðum verði hliðrað til og kvöð um gönguleið verði inn á lóðina frá Brekkugötu. Landnotkun lóðarinnar verði óbreytt og í samræmi við Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013 – 2025. Gert er ráð fyrir íbúðum, verslun og þjónustu á lóðinni. Á lóð austan Suðurgötu 7 verði kvöð um bílastæði felld úr gildi, einnig kvöð um aðkomu að þeim nyrst á lóð Suðurgötu 7, þess í stað verði þar kvöð um gönguleið. Kvöð um skrifstofur á 2.hæð Suðurgötu 7, í “Góðtemplarahúsinu”, verði felld úr gildi og heimilt verði að setja glugga og dyr á austurhlið hússins. Lóð austan Suðurgötu 7 verði opið almenningssvæði.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu Norðurhellu 2 frá 09.05. til 20.06.2018 og hér á vefnum.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 20.06.2018. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Further information is provided by the Environmental and Planning Service.
Planning Officer.