Category: News

Lokun undirganga við Þorlákstún/ Tjarnarvelli

Vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði verður undirgöngunum við Þorlákstún/Tjarnarvelli og aðliggjandi stígum lokað mánudaginn 7. október 2019. Gangandi og hjólandi vegfarendum er bent á hjáleið meðfram Suðurbraut og Ásbraut um undirgöng undir Reykjanesbraut við Hvaleyrarholt eða eftir Strandgötu. Gert er ráð fyrir að ný göngubrú verði opnuð á sama stað í byrjun næsta […]

Allt þéttbýli í Hafnarfirði komið í samband við Ljósleiðarann

Lokið er tengingu allra heimila í þéttbýli Hafnarfjarðar við Ljósleiðarann. Af þessu tilefni afhenti Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra skjöld til vottunar á þessum áfanga í uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu. Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur fagnar þessum áfanga. „Þetta er mikilvægt skref í uppbyggingu nútímasamfélaga að hafa svo trausta innviði […]

Lokun aðreinar að Strandgötu

Framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar halda áfram. Á næstu dögum mun verktaki setja upp merkingar á Strandgötubrú, hliðra umferð þar til norðurs og loka aðrein að Strandgötu. Hjáleið verður um Krýsuvíkurgatnamót/ Krýsuvíkurveg. Þetta er gert vegna fyrirhugaðra framkvæmda/skerðinga austan við Strandgötubrú þar sem þarf að mjókka Reykjanesbrautina tímabundið til að koma fyrir stoðvegg. Nákvæm tímasetning um […]

Samstarfsverkefni um þjónustu við fatlað fólk

Hæfingarstöðin í Bæjarhrauni er þátttakandi í Erasmus+ verkefni um hugmyndafræði og nálgunarleiðir í þjónustu við fatlað fólk. Um er að ræða tveggja ára samstarfsverkefni milli þriggja þjóða, þ.e.a.s. Íslands, Litháen og Ungverjalands sem ber yfirskriftina „Communication is the path to integration“ eða „Samskipti eru leið til samþættingar“. Áhersla á notkun óhefðbundinna tjáskipta Hæfingarstöðin hefur frá […]

Framkvæmdir hefjast við nýjan búsetukjarna

Fyrsta skóflustungan að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Öldugötu 45 var tekin í dag að viðstöddum m.a. væntanlegum íbúum. Um er að ræða sérhannað heimili fyrir fatlað fólk. HBH Byggir ehf. sér um uppbyggingu kjarnans og er gert ráð fyrir að íbúðirnar afhendist í apríl 2021. HBH Byggir ehf. átti lægsta tilboð í byggingu […]

The VITINN podcast – a new episode is now live!

Þriðji þáttur Vitans, hlaðvarps Hafnarfjarðarbæjar er kominn í loftið. Í þessum þætti ræðir Árdís Ármannsdóttir samskiptastjóri við Andra Ómarsson verkefnastjóra viðburða. Andri veitir hlustendum gott yfirlit yfir þann fjölda fjölbreyttu viðburða sem í boði eru í Hafnarfirði yfir árið, ræðir samheldni Hafnfirðinga, sérstöðu bæjarins og mikilvægi einstaklingsframtaksins fyrir samfélagið í heild sinni. Svo styttist í […]

Would you like to take part in developing a new area?

The Municipality of Hafnarfjörður has decided on planning and development for an area known as Hamranes. The area is south of Ásvallabraut, Velli 6 and Skarðshlíð. The area is approximately 25 hectares in size and will be accessed from Ásvallabraut. Developers are sought for the first phase of the area. Developers for the first phase. The City of Hafnarfjörður is seeking developers for the first […]

Gerð menntastefnu Hafnarfjarðar 2020-2030. Þín þátttaka!

Skólaárið 2019-2020 verður unnið að gerð nýrrar menntastefnu fyrir Hafnarfjörð. Að henni vinnur stýrihópur sem skipaður er bæjarfulltrúum og starfsmönnum mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar.  Við gerð stefnunnar er leitað til hagsmunaaðila og annarra eftir athugasemdum og hugmyndum.  Allir áhugasamir deilt hugmyndum sínum og ábendingum í gegnum Betri Hafnarfjörð Að vaxa, þroskast og menntast í síbreytilegu […]

Tjarnarvellir, Haukasvæði

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 18.9.2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar, vegna breyttrar landnotkunar við Tjarnarvelli, í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingartillagan nær til landsvæðis við Tjarnarvelli, Haukasvæði, og felst í að breyta landnotkunarskilgreiningu úr íþróttasvæði í íbúðarsvæði. Tillögurnar ásamt fylgigögnum verða aðgengileg í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu […]

Til hamingju Hjalli!

<img height="“1″" width="“1″" src="“https://www.facebook.com/tr?id=516144258555826&ev=PageView&noscript=1″/"> Leikskólinn Hjalli hóf starfsemi 25. september 1989 undir stjórn Margrétar Pálu Ólafsdóttur. Í dag fagnaði leikskólinn 30 ára afmæli með nemendum, starfsmönnum, bæjarstjóra, frumkvöðlinum sjálfum og fleiri gestum. Leikskólinn Hjalli hefur á þessum árum stimplað sig inn sem leikskóli sem fer óhefðbundnar leiðir í svo margþættu tilliti og hefur það í […]