Af gefnu tilefni vill Hafnarfjarðarbær vekja sérstaka athygli á því að bærinn mun ekki hirða jólatré frá íbúum eftir jólahátíðina. Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 21. september 2016 og hafa jólatré ekki verið sótt heim síðan þá. Sorpa tekur vel á móti öllum trjám eftir hátíðarnar – opnunartíma Sorpu […]
Category: News
Best skreyttu húsin í Hafnarfirði
Á Þorláksmessu voru verðlaun veitt fyrir best skreyttu húsin, best skreyttu götuna og best skreytta fjölbýlishúsið í Hafnarfirði. Hafnfirðingar og aðrir áhugasamir voru í upphafi desembermánaðar hvattir til að setja upp stóru jólagleraugun og senda ábendingu um það hús í Hafnarfirði sem þykir bera af í jólaskreytingunum þetta árið. Íbúar á Hnoðravöllum 7 hlutu fyrstu […]
Opnunartímar yfir jólahátíðina
Þjónustuver, menningarstofnanir, grunnskólar, leikskólar og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir hátíðarnar sem hér segir: Þjónustuver og þjónustumiðstöð Þjónustuver Þjónustumiðstöð 23. desember Lokað Lokað 24. desember Lokað Lokað 25. desember Lokað Lokað 26. desember Lokað Lokað 27. desember 08:00 – 16:00 07:30 – 17:00 28. desember 08:00 – 16:00 07:30 – 15:30 29. desember Lokað […]
Komdu í sund um jólin!
Sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar eru þrjár og hafa þær allar sín sérkenni. Upplýsingar um allar sundlaugarnar og staðsetningu þeirra er að finna HÉR Opnunartími sundlauganna yfir jólahátíðina 2018 er sem hér segir: Ásvallalaug Suðurbæjarlaug Sundhöll Hafnarfjarðar 23. desember 08:00 – 17:00 08:00 – 17:00 Lokað 24. desember 06:30 – 13:00 06:30 – 13:00 06:30 – […]
Hátíðarkveðja bæjarstjóra
Nú er jólahátíðin að ganga í garð, hin ljúfa hátíð ljóss og friðar. Fyrir okkur flest eru jólin full af tilhlökkun, von og kærleika. Jólin sameina fjölskyldur og vini og því fylgir eftirvænting að fá að njóta kyrrðardaga með þeim sem okkur þykir vænst um. Þó að margir séu á þönum í aðdraganda hátíðarinnar þá eru það sjálf jólin sem færa okkur hina einu […]
Breyting á deiliskipulagi Suðurgata – Hamarsbraut
Bæjarráð Hafnarfjarðar í umboði bæjarstjórnar samþykkti þann 12.07.2018 breytingar á deiliskipulagi Suðurgata-Hamarsbraut. Tillagan var auglýst skv. 1.mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim, sem gerðu athugasemdir, verið send umsögn sveitastjórnar. Deiliskipulagið er samþykkt með þeirri breytingu að ný lóð við Suðurgötu 46 er felld út. Þess í stað verði komið fyrir bílastæðum […]
Gleðileg jól! Season´s Greetings! Wesołych Świąt!
Drög að aðgerðaáætlun gegn hávaða fyrir 2018-2023
Hafnarfjarðarbær kynnir bæjarbúum drög að aðgerðaáætlun gegn hávaða fyrir árin 2018 til 2023. Gerð aðgerðaáætlunar gegn hávaða er hluti af tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða (2002/49/EC), sem var innleidd á Íslandi með reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005 og hefur það að markmiði að draga úr hávaða og óæskilegum áhrifum hans. Aðgerðaáætlunin er byggð […]
BRÚIN: Barn | Ráðgjöf | Úrræði
Grein eftir Huldu Björk Finnsdóttur, félagsráðgjafa og verkefnastjóra BRÚARINNAR. Stjórnvöld og fagaðilar innan mennta- og velferðarþjónustu hafa síðustu misseri lagt ríkari áherslu á að bregðast fljótt við þegar börn og unglingar sýna fyrstu merki um náms- tilfinninga- eða geðheilsuvanda. Starfshópur í Hafnarfjarðarbæ hefur síðustu tvö árin unnið að því að þróa verklag til að veita […]
Launamunur minnkar hjá Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjarðarbær var fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að fá jafnlaunavottun og vottað jafnlaunamerki frá velferðarráðuneytinu í ágúst 2017. Viðhaldsvottun sem framkvæmd var af BSI á Íslandi nú í desember leiðir í ljós lækkun á launamun um 1,4% frá því að jafnlaunamerkið var afhent. Í ágúst 2017 var launamismunur 4,8%, karlmönnum í hag, en mælist nú […]