Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fyrstu úthlutun íbúðahúsalóða í Skarðshlíð 3. áfanga. Umsóknarfrestur í fyrstu úthlutun lóðanna er 22. apríl 2019. Samhliða kynnum við nýja upplýsingasíðu fyrir Skarðshlíðina – nýtt og fjölskylduvænt íbúðahverfi í Hafnarfirði. Sannkölluð náttúruperla á frábærum stað! Ný upplýsingasíða um SKARÐSHLÍÐ er nú komin í loftið – skardshlidin.is Sannkölluð náttúruperla á […]
Category: News
Driving and shooting training area in Kapelluhraun
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi aksturs- og skotæfingasvæðis í Kapelluhrauni í Hafnarfirði skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Í tillögunni er verið að bæta við og breyta núverandi byggingarreitum ásamt því að búa til nýja lóð eins og uppdráttur dags. 03.10.2018 gerir grein fyrir. Breytingartillagan verður til sýnis […]
Power cut in Hafnarfjörður
Rafmagnslaust er þessa stundina á Völlunum í Hafnarfirði og að hluta á Holtinu og í Áslandi. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti þá varð útleysing á 11 kV útgangi SP2 í Hamranesi sem olli rafmagnsleysi á þessum stöðum. Líkleg orsök útleysingar er að grafið hafi verið í jarðstreng. Unnið er að viðgerðum.
The new youth centre is called Hamarinn.
Ungmennahús, sem nýlega tók til starfa í gömlu Skattstofunni, hefur fengið nafnið Hamarinn. Nýtt nafn var kosið á ungmennahúsið í gærkvöld á stofnfundi húsfélagsins við Suðurgötu 14. Nafnið Hamarinn varð fyrir valinu úr þeim 18 tillögum sem lagðar voru fram en nafnið er dregið af því fallega útivistarsvæði sem staðsett er stutt frá ungmennahúsinu sjálfu. […]
Cold water supply off at Skúlaskeiði
Lokað verður fyrir kalda vatnið á Skúlaskeiði frá kl. 9 – 13 miðvikudaginn 20. mars. Við þökkum sýndan skilning.
Two musical acts to continue in Nótuna
Það styttist í Nótuna (uppskeruhátíð tónlistarskóla) en svæðistónleikar eru í gangi þessa dagana um allt land þar sem valin eru 7 atriði frá hverju svæði á lokahátíð Nótunnar sem fram fer á í menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 6. apríl nk. Tvö atriði frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar voru valin um helgina til að taka þátt í […]
Town Council Meeting, 20th March
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 20. mars. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Customer service opens at 9:30 on Monday.
On Monday, 18th March, the Hafnarfjörður Customer Service will open at 9:30 a.m. instead of 8:00 a.m. due to a staff meeting. Thank you in advance for your understanding!
Nutritional Agreement and Standardised Menus
Leikskólar Hafnarfjarðar starfa eftir nýjum næringarsáttmála og elda eftir samræmdum matseðlum. Vinna við verkefnið hefur staðið yfir um nokkurt skeið og hófst markviss innleiðing þess fyrir rétt um ári síðan. Afraksturinn byggir á mikilli greiningarvinnu, næringarútreikningum, samstarfi og samtali viðeigandi aðila ásamt mati nemenda og starfsmanna. Næringarsáttmálinn hefur nú formlega verið gefinn út. Samræmdir matseðlar […]
New pilot project by the police and the local council
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Hafnarfjarðarbær hafa tekið höndum saman og komið á samstarfs- og þróunarverkefni sem hefur þann tilgang að efla samvinnu þessara aðila í málum barna og unglinga. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs sem fer af stað nú um miðjan mars og hlýtur styrk frá Lýðheilsusjóði. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á […]