Fjöldi ábendinga frá bæjarbúum og starfsmönnum fyrirtækja í Hafnarfirði barst þegar óskað var eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir snyrtileika og fegurð lóða og garða í sveitarfélaginu. Icelandair og Rafal ehf. fengu viðurkenningu fyrir snyrtilegustu fyrirtækjalóðirnar á athafna- og iðnaðarsvæðum og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar heiðursverðlaun fyrir brautryðjandastarf í landgræðslu, gróðurvernd og fjölbreyttri trjá- og skógrækt en verðlaunin […]
Category: News
Council grants
Bæjarráð veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum eða einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröð sveitarfélagsins. Úthlutun styrkja fer fram tvisvar á ári og nú er komið að seinni úthlutun ársins í ár. Umsóknarfrestur er til 1. október 2018. Umsækjendur […]
Leisure driving
Á síðasta skólaári hófst frístundaakstur aftur í Hafnarfirði og ekið var með 6 og 7 ára nemendur á æfingar hjá þremur íþróttafélögum. Tilraunin tókst afar vel og nýttu um 300 nemendur sér aksturinn í hverri viku. Á þessu skólaári verður öllum nemendum 1. – 4. bekkjar boðið upp á akstur á æfingar sem hefjast klukkan […]
Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og deiliskipulagi Suðurhafnar, Fornubúðir 5
Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 22.8.2018 að auglýsa framlagða tillögu, dags. 08.08.2018, að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkti á fundi sínum […]
Vegna trjágróðurs á lóðamörkum
Byggingarfulltrúi og garðyrkjustjóri Hafnarfjarðar vilja góðfúslega minna íbúa á að snyrta trjágróður á sínum lóðarmörkum. Töluvert hefur borið á ábendingum þar sem gróðurinn vex langt út á gangstéttar og götur og hindrar bæði sýn og umferð. Getur þetta valdið óþægindum og hættu fyrir þá sem leið eiga um. Það sem þarf að hafa í huga […]
Skólabyrjun
Formlegt skólastarf nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar hefst miðvikudaginn 22. ágúst. Rétt rúmlega 4.000 börn setjast á skólabekk þetta haustið, og af þeim um 130 börn í Skarðshlíðarskóla sem flytur inn nýtt skólahúsnæði í Skarðshlíð. Að byrja í grunnskóla er stórt skref í lífi hvers barns og við slík tímamót er samstarf heimilis og skóla afar […]
Bæjarstjórnarfundur 22. ágúst
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 22.ágúst. Fundurinn hefst kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Háskóli Íslands í Menntasetrið við Lækinn
Hafnarfjarðarbær og Háskóli Íslands hafa komist að samkomulagi um að skólinn komi upp aðstöðu fyrir tæknifræðinám í Menntasetrinu við Lækinn nú í haust. Bæjarráð samþykkti samninginn á fundi sínum í morgun. Tæknifræðikennslan mun hefjast af fullum þunga núna í haust hér í Hafnarfirði en námið hafði áður verið í samstarfi við Keili í Ásbrú á […]
Árshlutareikningur 2018
Rekstrarniðurstaða Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrri hluta ársins 2018 var jákvæð um 758 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði 449 milljónir króna. Helstu frávik eru að framlög jöfnunarsjóðs voru umfram áætlun um 93 milljónir króna, aðrar tekjur voru um 140 milljónum króna umfram áætlun og fjármagnskostnaður var um 119 milljónum króna lægri en áætlun […]
Bættar starfsaðstæður sem draga úr álagi
Hafnarfjarðarbær hefur síðustu vikur og mánuði verið að vinna með niðurstöður skýrslu sem unnin var í vetur um starfsaðstæður á leikskólum bæjarins. Í samræmi við niðurstöðum hennar hefur Hafnarfjarðarbær verið að vinna að bættu starfsumhverfi og aðstöðu bæði barna og starfsfólks leikskólanna. Í þessum endurbótum er meginmarkmið að minnka álag á börn og starfsfólk skólanna. […]