Primary school pupils voted for the local council today.
Hafnarfjarðarbær svaraði kalli Umboðsmanns barna og boðaði til kosninga í grunnskólum Hafnarfjarðar í dag. Krakkarnir leiddu för og styrktu þannig þekkingu sína á virkni lýðræðis.
Krakkarnir læra um sveitarstjórnarkosningar
A, B, C, D, M og S. Þetta var valið sem grunnskólanemendur í Hafnarfirði höfðu í krakkakosningum grunnskólanna í dag – sama val og verður í sveitarstjórnarkosningunum hér í Hafnarfirði á laugardag.
Krakkafréttir RÚV heimsóttu Hvaleyrarskóla á meðan á kosningunum stóð. Nemendur í 5.-10. bekk kusu þar í hádeginu. Þar var búið að setja upp kjördeild á bókasafninu og stemningin virkilega mikil. Talningar standa nú yfir fyrir alla skólana en úrslitin verða kunngjörð eftir að kosningu lokar á laugardagskvöld. Börnin þurfa þó að bíða til átján ára aldurs þar til atkvæðin telja til kosninganna sjálfra.
Mikil stemning fyrir kosningunum
Stemning er fyrir kosningunum. Áttundi bekkur kýs til að mynda aftur í Hvaleyrarskóla á morgun þar sem 6 grunnskólanemendur hafa valið að kynna sér kosningafyrirkomulagið betur í valáfanga og eru þær kosningar hluti þess verkefnis. Þessi sami hópur myndaði kjörstjórn í Hvaleyrarskóla í dag og stóð sig afar vel.
En úr hverju höfðu krakkarnir að moða? Hvernig ákváðu þau hvað ætti að kjósa? Fulltrúar Ungmennaráðs bæjarins stýrðu för við myndbandsgerð þar sem hvert framboð átti sinn fulltrúa. Spurningarnar voru valdar úr niðurstöðum Barnaþings Hafnarfjarðar sem var haldið fyrir 5.-7. bekk nú í apríl.
Mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðarbæjar vann myndbandið með Rec Media og sögðu frambjóðendur fulltrúum Ungmennaráðsins þar frá áherslum flokka sinna.
Svörum kalli Umboðsmanns barna
Umboðsmaður barna hvetur öll sveitarfélög, ungmennaráð sveitarfélaga og grunnskóla landsins til að standa fyrir viðburðum sem efla lýðræðislega þátttöku barna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 2026. Umboðsmaðurinn hvatti einnig til krakkakosninga, eins og þeirra sem fóru fram í bæjarfélaginu í dag.
Auðvitað svarar Hafnarfjarðarbær því kalli, enda barnvænt sveitarfélag.