The Weekend: Music, science, art and a coffee and knitting session
Fjölbreytt dagskrá bíður Hafnfirðinga og gesta bæjarins um helgina. Boðið verður upp á tónleika í Hafnarborg, Vísindakakó fyrir forvitna krakka, myndlist í Litla Gallerý, útgáfuhóf og notalegt prjónakaffi.
Tónlistarhelgi í Hafnarborg og Bæjarbíói
Tríó Rebekku Blöndal kemur fram á fyrstu Síðdegistónum haustsins í Hafnarborgí dag, föstudaginn 18. september, kl. 18. Með Rebekku leika Andrés Þór á gítar og Þorgrímur Jónsson á kontrabassa. Flutt verða eldri og nýrri lög Rebekku, meðal annars af nýútkominni plötu hennar, Maybe. Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.
Sama kvöld verður tónlist Rúnars Júlíussonar í öndvegi í Bæjarbíói á tónleikunum Rúnar Júl – 80+ ára. Synir Rúnars stíga á svið ásamt góðum gestum og flytja lögin sem hafa fylgt þjóðinni í áratugi. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Á laugardagskvöld snúa Bjartmar Guðlaugsson og Bergrisarnir loks aftur í Bæjarbíó. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og eru örfá sæti laus.
Vísindakakó fyrir forvitna krakka
Dr. Erna Magnúsdóttir, dósent við læknadeild Háskóla Íslands, verður gestur Vísindakakós í Bókasafni Hafnarfjarðar laugardaginn 19. september kl. 13.
Vísindakakó er ætlað forvitnum krökkum sem vilja hitta vísindafólk, fræðast um rannsóknir þess og spyrja spurninga um vísindi og vísindastörf. Boðið verður upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Bjarmaband og Síðustu risarnir
Útgáfu bókarinnar Aurora Borealis: Frosty Fjalar verður fagnað í Hafnarborg laugardaginn 19. september kl. 15–17. Bókin er gefin út í tengslum við samnefnda sýningu og hefur að geyma úrval verka Frosta Fjalars ásamt ljósmyndum og textum sem varpa ljósi á myndlist hans og feril. Gestum gefst einnig tækifæri til að skoða sýninguna og verður bókin seld á sérstöku kynningarverði. Aðgangur er ókeypis.
Sýning Júlíusar Hafsteins, Síðustu risarnir, stendur jafnframt yfir í Litla Gallerý alla helgina. Þar sýnir Júlíus meðal annars málverk af evrópska vísundinum og fjallar í verkum sínum um náttúruna, þrautseigju og sigur gegn mótlæti.
- Opið er föstudag kl. 13–18,
- laugardag kl. 13–17 og sunnudag kl. 14–17.
HamingjuPrjónakaffi á sunnudegi
Helginni lýkur með notalegu Happy Knitting Cafe at Ægi 220 sunnudaginn 20. september kl. 13–16. Þar verður kaffi á könnunni, kleinur á borðum og gestir hvattir til að taka prjónana með sér.
Garnbúðin Edda verður með pop-up markað á staðnum. Bæði vanir prjónarar og byrjendur eru hjartanlega velkomnir.